Fréttir

Landslið SKÍ á fullu í undirbúningi fyrir komandi keppnistímabil

Landslið SKÍ í alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og skíðafimi hafa verið á fullu við æfingar í sumar. Undirbúningstímabilið er nú langt komið og hafa liðin nýtt sumarið vel, bæði hér heima og erlendis. Fram undan eru síðan fleiri æfingabúðir áður en keppnistímabilið hefst.

SKÍ auglýsir eftir landsliðsþjálfara í alpagreinum

Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum þjálfara til starfa með alpagreinalandsliði Íslands tímabilið 2026–2027

Afrekshópur snjóbretta - Nýtt tækifæri fyrir metnaðarfulla iðkendur

Vegna mikils áhuga meðal iðkenda í hæfileikamótun snjóbretta kynnir Skíðasamband Íslands Afrekshóp snjóbretta.

Landslið Íslands í alpagreinum fyrir tímabilið 2026–2027 valið

Skíðasamband Íslands hefur nú valið landslið Íslands í alpagreinum fyrir keppnistímabilið 2026–2027

Landslið Íslands í snjóbrettum og skíðafimi valið fyrir tímabilið 2026–2027

Skíðasamband Íslands hefur valið landslið Íslands í snjóbrettum og skíðafimi fyrir keppnistímabilið 2026–2027 í samræmi við áður útgefnar reglur sambandsins

Landslið í skíðagöngu valið fyrir tímabilið 2026–2027

Skíðasamband Íslands hefur nú valið landslið Íslands í skíðagöngu fyrir keppnistímabilið 2026–2027 í samræmi við áður útgefnar reglur sambandsins

Skíðasambandið auglýsir eftir þjálfurum í Hæfileikamótun alpagreina

Skíðasamband Íslands auglýsir eftir áhugasömum alpagreinaþjálfurum fyrir æfingaferð Hæfileikamótunar í alpagreinum til Stubai í Austurríki dagana 21. - 31. október 2026

Tómas Leifsson heiðraður með Heiðursstjörnu SKÍ

Skíðamaðurinn og Ólympíufarinn Tómas Leifsson var heiðraður með Heiðursstjörnu Skíðasambands Íslands við setningu Andrésar Andar leikanna, sem fram fór miðvikudaginn 22. apríl síðastliðinn.

Kristrún Guðnadóttir leggur skíðin á hilluna eftir farsælan landsliðsferil og tvo Ólympíuleika

Landsliðskonan og Ólympíufarinn Kristrún Guðnadóttir hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að leggja keppnisskíðin á hilluna og gefa ekki kost á sér áfram í landsliði Íslands í skíðagöngu.

Sigurður Ægir og Steinunn María bikarmeistarar SKÍ í snjóbrettum 2026

Bikarmeistarar Skíðasambands Íslands í snjóbrettum fyrir keppnistímabilið 2025–2026 voru krýndir á lokahófi Snjóbrettamóts Íslands sem fram fór í Brettafélagi Hafnarfjarðar að keppni lokinni á laugardaginn.