Anna Kamilla Hlynsdóttir, sem er að koma til baka eftir meiðsli, hafnaði í 17. sæti af 30 keppendum í undankeppni kvenna í Big Air á opnunarmóti heimsbikarsins á snjóbretti í Innsbruck í Austurríki fimmtudaginn 26. nóvember, þegar konur kepptu í fyrsta sinn á hinum sögufræga Bergisel-leikvangi.
Mótið markar upphaf nýs fjögurra ára Ólympíuhrings og er fyrsta heimsbikarmót vetrarins í Big Air. Bergisel er oft kallaður vagga nútíma Big Air-keppni, því þar fór hin goðsagnakennda Air + Style-keppni fram fyrir aldamót og fram á fyrsta áratug aldarinnar. Konur höfðu þó aldrei áður keppt þar.
Ólympíumeistarinn efst
Kokomo Murase frá Japan, ríkjandi heims- og Ólympíumeistari, var efst í undankeppninni. Þetta var fyrsta mót hennar síðan hún vann gull í Big Air á Ólympíuleikunum í Mílanó-Cortina í febrúar. Annika Morgan frá Þýskalandi varð önnur og hin unga Sky Remans frá Belgíu, fædd 2010, varð þriðja. Austurríska goðsögnin Anna Gasser varð fjórða á heimavelli. Hún er tvöfaldur Ólympíumeistari í Big Air og hefur sagt að þetta verði hennar síðasti vetur í heimsbikarnum.
Sterk endurkoma eftir meiðsli
Anna Kamilla (Brettafélagi Hafnarfjarðar) er í A-landsliðinu á snjóbretti og er að koma til baka eftir meiðsli. Hún hefur lítið sem ekkert getað æft á snjó undanfarið. Hún lét það þó ekki á sig fá og skildi 13 keppendur eftir fyrir aftan sig. Þar á meðal var Momo Suzuki frá Japan, sem komst á pall í Big Air í heimsbikarnum í Beijing fyrir ári. Þar voru líka bandarísku efnin Lily Dhawornvej, sem vann kristalshnöttinn í slopestyle síðasta vetur, og Jessica Perlmutter. Anna Kamilla og þjálfari hennar voru afar sátt við árangurinn.
17. sætið jafnar besta sæti Önnu Kamillu á heimsbikarmóti. Hún varð einnig 17. í Secret Garden í Kína í nóvember í fyrra.
Á góðu skriði
Anna Kamilla lauk síðasta tímabili með 6. sæti í Big Air í Evrópubikarnum í Kitzsteinhorn í Austurríki, sem er hennar besta sæti í Evrópubikarnum. Í apríl varð hún svo tvöfaldur Íslandsmeistari í Bláfjöllum, í Big Air og slopestyle.
Næst á dagskrá
Úrslit kvenna og karla fara fram á Bergisel laugardagskvöldið 28. nóvember. Næsta heimsbikarmót í Big Air verður í Shougang-garðinum í Beijing 3.–5. desember og stefnir Anna Kamilla á að taka þátt þar.
Úrslit undankeppninnar má sjá hér.