Fréttir

Alpagreinalandsliðið hóf keppnistímabilið á tveimur svigmótum í Kåbdalis í Svíþjóð um helgina

Alpagreinalandsliðið hóf keppnistímabilið á tveimur svigmótum í Kåbdalis í Svíþjóð um helgina, þar sem Matthías Kristinsson og Gauti Guðmundsson urðu í 18. og 20. sæti á sunnudag.

Keppnistímabilið byrjað hjá Skíðagöngulandsliðinu, Fróði með besta árangur Íslendinganna í Finnlandi

Íslenska skíðagöngulandsliðið hóf keppnistímabilið á þriggja daga FIS-móti í Muonio í Finnlandi um helgina, þar sem Fróði Hymer náði bestum árangri þegar hann varð í 36. sæti af 147 í 10 km göngu með frjálsri aðferð á sunnudag og náði jafnframt bestu FIS-punktum ferilsins.

Skíðafélag Ólafsfjarðar 25 ára – þrír sjálfboðaliðar heiðraðir

Skíðafélag Ólafsfjarðar fagnaði 25 ára afmæli sínu 18. október og við það tilefni veitti Skíðasamband Íslands þremur sjálfboðaliðum félagsins gull- og silfurmerki SKÍ.

SKÍ auglýsir eftir aðstoðarfólki á HM og HM unglinga í alpagreinum og skíðagöngu 2027

Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskar eftir umsóknum frá áhugasömum einstaklingum til að sinna verkefnum á HM og HM unglinga í alpagreinum og HM unglinga í skíðagöngu árið 2027.

Karítas tvisvar á palli í svigi í Osló

Karítas Sigurðardóttir náði 2. og 3. sæti á FIS-svigmótum í Osló dagana 10.–11. nóvember, þar sem fimm íslensk ungmenni kepptu.

Skíðasamband Íslands hélt sitt 77. Skíðaþing um liðna helgi

Það var góður andi í Drift EA á Akureyri um liðna helgi þegar 77. Skíðaþing fór fram. Hápunkturinn var vinnustofa um stefnumótun. Þar tóku þingfulltrúar víðs vegar af landinu höndum saman og lögðu grunn að framtíðarsýn skíðahreyfingarinnar.

Íslenskir skíða- og snjóbrettaiðkendur í alþjóðlegum æfingabúðum FIS

Nýverið tóku íslenskir skíða- og snjóbrettaiðkendur þátt í alþjóðlegum æfingabúðum á vegum Alþjóðaskíða- og snjóbrettasambandsins (FIS). Æfingabúðirnar fóru fram í Landgraaf í Hollandi og Falun í Svíþjóð, þar sem iðkendurnir fengu dýrmætt tækifæri til að æfa við góðar aðstæður, kynnast jafnöldrum frá öðrum löndum og öðlast alþjóðlega reynslu.

FIS býður upp á alþjóðlegar æfingabúðir fyrir unga skíða- og snjóbrettaiðkendur

Alþjóðaskíða- og snjóbrettasambandið (FIS) býður árlega upp á fjölbreyttar æfingabúðir, svokallaðar FIS Camps, fyrir unga skíðaiðkendur sem eru á keppnisaldri fyrir heimsmeistaramót unglinga. Æfingabúðirnar eru í alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og skíðafimi og eru frábært tækifæri fyrir efnilega iðkendur til að öðlast alþjóðlega reynslu, æfa við nýjar aðstæður og kynnast skíða- og snjóbrettafólki frá öðrum löndum.

SKÍ óskar eftir umsóknum frá félögum til að halda Hæfileikamótun í alpagreinum

Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskar eftir umsóknum frá skíðafélögum sem hafa áhuga á að taka að sér framkvæmd æfingabúða á snjó fyrir Hæfileikamótun í alpagreinum dagana 27.–29. nóvember 2026, fyrir árganga 2009–2012.

Ísland öðlast fulla aðild að Alþjóða Skíðaskotfimisambandinu (IBU)

Á þingi Alþjóða Skíðaskotfimisambandsins (IBU) í Berchtesgaden í Þýskalandi um helgina var umsókn Skíðasambands Íslands um fulla aðild samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Skíðaskotfimi er ein af þeim íþróttagreinum sem er innan vébanda SKÍ, ásamt alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og skíðafimi.