FIS býður upp á alþjóðlegar æfingabúðir fyrir unga skíða- og snjóbrettaiðkendur

Alþjóðaskíða- og snjóbrettasambandið (FIS) býður árlega upp á fjölbreyttar æfingabúðir, svokallaðar FIS Camps, fyrir unga skíðaiðkendur sem eru á keppnisaldri fyrir heimsmeistaramót unglinga. Æfingabúðirnar eru í alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og skíðafimi og eru frábært tækifæri fyrir efnilega iðkendur til að öðlast alþjóðlega reynslu, æfa við nýjar aðstæður og kynnast skíða- og snjóbrettafólki frá öðrum löndum.

FIS stendur straum af kostnaði við gistingu og uppihald þeirra þátttakenda sem valdir eru af sínu skíðasambandi til þátttöku í æfingabúðunum. Skíðasamband Íslands greiðir skráningargjald þátttakenda en iðkendurnir sjálfir bera allan ferðakostnað.

Oft gefst einnig kostur á að senda þjálfara í æfingabúðirnar. Í þeim tilfellum er mælst til þess að félagið sem þjálfarinn starfar hjá, eða félag þátttakenda í æfingabúðunum, greiði ferðakostnað hans.

Dýrmæt reynsla fyrir iðkendur og þjálfara

Þátttaka í FIS-æfingabúðum er afar lærdómsrík, bæði fyrir iðkendur og þjálfara. Þar gefst tækifæri til að kynnast nýjum æfingaaðferðum, læra af reyndum þjálfurum og öðlast innsýn í skíðastarf annarra þjóða.

Ekki síður mikilvægur þáttur er sá félagsskapur og þau tengsl sem myndast í æfingabúðunum. Iðkendur fá tækifæri til að kynnast jafnöldrum sínum frá öðrum löndum, eignast nýja vini og byggja upp tengsl sem geta nýst þeim áfram á skíðaferlinum. Þjálfarar fá sömuleiðis tækifæri til að miðla reynslu og læra af kollegum sínum erlendis.

Þátttakendur koma því heim reynslunni ríkari, bæði í íþróttinni sjálfri og félagslega.

Hvaða æfingabúðir eru í boði?

FIS heldur úti dagatali þar sem hægt er að sjá hvaða æfingabúðir eru í boði hverju sinni, ásamt nánari upplýsingum um þær.

Skoða æfingabúðir FIS hér

SKÍ hvetur áhugasama iðkendur og þjálfara til að kynna sér þau tækifæri sem bjóðast í gegnum FIS-æfingabúðirnar.