Frábær árangur hjá Önnu Kamillu í Evrópubikar í Austurríki
08. apr. 2026
Landsliðskonan í snjóbrettum, Anna Kamilla Hlynsdóttir, tók í dag þátt í Evrópubikar í Big Air sem fram fór í Kitzsteinhorn í Austurríki. Anna Kamilla stóð sig frábærlega, tryggði sér sæti í úrslitum og endaði í 6. sæti, sem er glæsilegur árangur.
