Skíðamót Íslands í skíðaskotfimi fór fram laugardaginn 11. apríl í Selárdal við Steingrímsfjörð. Vegna slæmrar veðurspár fyrir sunnudaginn var keppni mótsins flýtt og keppt í tveimur greinum sama dag.
Þetta er í annað sinn sem Skíðamót Íslands í skíðaskotfimi er haldið, en mótið fór fyrst fram árið áður.
Fyrri keppni dagsins var einstaklingsstart þar sem keppendur skutu tvisvar sinnum fimm skotum og fóru einn refsihring fyrir hvert skot sem geigaði. Seinni keppnin var hópstart þar sem einnig var skotið tvisvar sinnum fimm skotum, en þar bættist tímarefsing við heildartíma keppenda fyrir hvert skot sem missti marks.
Alls tóku 26 keppendur þátt í mótinu og var keppt í þremur aldursflokkum karla og kvenna. Sigurvegarar í hverjum flokki hlutu titil Íslandsmeistara í skíðaskotfimi. Öll úrslit mótsins má finna á hér inn á tímataka.net.
Keppni var spennandi í flestum flokkum og sáust margir efnilegir skíðaskotfimimenn stíga fram. Í yngstu flokkunum stóðu keppendur sig vel, en í eldri flokkum réði reynsla og stöðugleiki oft úrslitum.
Í lok mótsins voru einnig afhent verðlaun fyrir þrjú efstu sæti í bikarkeppni SKÍ í skíðaskotfimi árið 2026, þar sem besti árangur tímabilsins var heiðraður.
Að mótinu stóð Skíðafélag Strandamanna sem þakkar öllum keppendum fyrir þátttökuna. Jafnframt fá starfsmenn mótsins kærar þakkir fyrir vel unnin störf, auk Skíðasambands Íslands og skíðaskotfiminefndar fyrir gott samstarf við undirbúning mótsins.
Skíðasamband Íslands óskar öllum Íslandsmeisturum og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.
(Refsihringir innan sviga)
Stúlkur 11–13 ára (3 km)
Drengir 11–13 ára (3 km)
Stúlkur 14–15 ára (4,5 km)
Drengir 14–15 ára (4,5 km)
Konur 16 ára og eldri (6 km)
Karlar 16 ára og eldri (7,5 km)
Stúlkur 11–13 ára (3 km)
Drengir 11–13 ára (3 km)
Stúlkur 14–15 ára (4,5 km)
Drengir 14–15 ára (4,5 km)
Konur 16 ára og eldri (6 km)
Karlar 16 ára og eldri (7,5 km)
Stúlkur 11–13 ára
Drengir 11–13 ára
Stúlkur 14–15 ára
Drengir 14–15 ára
Konur 16 ára og eldri
Karlar 16 ára og eldri
























