Bikarmeistarar SKÍ krýndir á lokahófi UMÍ

Bikarmeistarar SKÍ í alpagreinum í flokkum 12–13 ára og 14–15 ára voru krýndir við hátíðlega athöfn á lokahófi Unglingameistaramóti Íslands (UMÍ), sem fram fór á Logni á Hótel Ísafirði síðastliðinn laugardag.

Bikarmeistarar ársins voru þau Elvar Magni Þorvaldsson, Mirra Kristín Pálmarsdóttir, Barri Björgvinsson og Jóhanna Skaftadóttir, sem öll áttu afar sterkt tímabil.

Við sama tilefni voru einnig heiðruð stigahæstu lið mótsins, en bikarmeistari liða í aldursflokknum 12–15 ára varð Ármann, sem safnaði flestum stigum samanlagt á tímabilinu.

Keppni í yngri flokkunum var jöfn og spennandi og sáust margir efnilegir keppendur skara fram úr á tímabilinu.

Bikarmeistarar SKÍ 12–13 ára

Í flokki 12–13 ára stóðu eftirfarandi keppendur efstir:

Drengir 12–13 ára

  1. Elvar Magni Þorvaldsson (SKA) – 380 stig
  2. Júlíus Bent Rafnsson (VÍK) – 350 stig
  3. Haukur Steinsson (ÁRM) – 280 stig

Stúlkur 12–13 ára

  1. Mirra Kristín Pálmarsdóttir (ÁRM) – 420 stig
  2. Brynja Sólveig Sveinbjörnsdóttir (VÍK) – 355 stig
  3. Inga Fríða Orradóttir (ÁRM) – 340 stig

Bikarmeistarar SKÍ 14–15 ára

Í eldri unglingaflokknum urðu úrslitin eftirfarandi:

Drengir 14–15 ára

  1. Barri Björgvinsson (DAL) – 480 stig
  2. Sævar Kári Kristjánsson (VÍK) – 410 stig
  3. Friðrik Kjartan Sölvason (SKA) – 330 stig

Stúlkur 14–15 ára

  1. Jóhanna Skaftadóttir (DAL) – 437 stig
  2. Mundína Ósk Þorgeirsdóttir (SSS) – 380 stig
  3. Sylvía Mörk Kristinsdóttir (SKA) – 320 stig

Skíðasamband Íslands óskar öllum bikarmeisturum, þeim Elvari Magna Þorvaldssyni, Mirru Kristínu Pálmarsdóttur, Barra Björgvinssyni og Jóhönnu Skaftadóttur, innilega til hamingju með árangurinn. Þá óskar sambandið einnig Ármanni til hamingju með liðabikarinn og frábæran árangur á tímabilinu, ásamt öllum öðrum verðlaunahöfum.

Sjá öll bikarstig hér