Landsliðsmaðurinn Jón Erik Sigurðsson náði góðum árangri í dag þegar hann hafnaði í 3. sæti í svigi á National Junior Championship mótinu í Val d’Isère. Frakkar skipuðu tvö efstu sætin í keppninni, en Jón Erik tryggði sér bronsverðlaunin með sterkri frammistöðu.
Jón Erik er þessa dagana að keppa á mótaröð í Val d’Isère ásamt landsliðsmönnunum Tobias Hansen og Pétri Reidari Péturssyni úr B-liði. Tobias og Pétur náðu því miður ekki að ljúka fyrri ferðinni í sviginu í dag. Með þeim á mótunum er landsliðsþjálfarinn Marko Spoljaric.
Einnig eru íslensku stelpurnar í Icegirls liðinu að keppa á sama móti, þær Sonja Lí Kristinsdóttir, Sara Mjöll Jóhannsdóttir og Þórdís Helga Grétarsdóttir, og safna þar dýrmætri reynslu í sterkri alþjóðlegri samkeppni.
Á sama tíma var landsliðsmaðurinn Matthías Kristinsson að keppa í stórsvigi á norska meistaramótinu sem fram fer í Kvitfjell um helgina. Mótið er jafnan mjög sterkt og taka langflestir af bestu skíðamönnum Noregs þátt. Matthías endaði í 28. sæti í keppninni, en sigurvegari mótsins og nýr norskur meistari var Rasmus Bakkevig, heimsmeistari unglinga í stórsvigi. Með Matthíasi í Kvitfjell er landsliðsþjálfarinn Haukur Þór Bjarnason.
Skíðasamband Íslands óskar Jóni Erik innilega til hamingju með bronsverðlaunin í dag.
