Landsliðskonan í snjóbrettum, Anna Kamilla Hlynsdóttir, tók í dag þátt í Evrópubikar í Big Air sem fram fór í Kitzsteinhorn í Austurríki. Anna Kamilla stóð sig frábærlega, tryggði sér sæti í úrslitum og endaði í 6. sæti, sem er glæsilegur árangur.
Árangurinn er sérstaklega ánægjulegur í ljósi þess að Anna Kamilla þurfti nýverið að draga sig úr keppni á Heimsbikarmóti í Flachau í Austurríki eftir fall þar sem hún meiddist og þurfti að taka sér nokkurra daga hvíld.
Anna Kamilla mun snúa heim á næstu dögum og taka þátt í Snjóbrettamóti Íslands sem fram fer í Bláfjöllum dagana 18.–19. apríl.
Skíðasamband Íslands óskar Önnu Kamillu innilega til hamingju með árangurinn.

