Unglingameistaramót Íslands fór fram á Ísafirði um liðna helgi og tókst mótið vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður. 96 keppendur voru skráðir til leiks og var keppt í svigi og stórsvigi fyrir aldurinn 12 – 15 ára. Keppendur hvaðanæva að af landinu sóttu mótið heim og ríkti mikil stemning alla helgina meðal þátttakenda, þjálfara og aðstandenda.
Fresta þurfti svig mótinu á föstudaginn þar sem það hafði fryst undir morgun og hörð skel myndast ofan á blautum snjónum. Vegna þessa aðstæðna var keppni blásin af og frestað til laugardagsins. Laugardagurinn gekk vel fyrir sig þar sem kepp var í báðum greinunum í frábæru færi þó vindurinn hafi ögn mikið verið að flýta sér þegar að líða tók á daginn.
Mundína Ósk Þorgeirsdóttir úr Skíðafélagi Siglufjarðar og Barri Björgvinsson frá Skíðafélagi Dalvíkur voru bæði þrefaldir íslandsmeistarar í 14 – 15 ára flokki.
Inga Fríða Orradóttir úr Ármanni og Elvar Magni Þorvaldsson frá Skíðafélagi Akureyrar voru bæði þrefaldir Íslandsmeistarar í 12 – 13 ára flokki.
Úrslit helgarinnar:
Sórsvig 12-13 ára stúlkur
Stórsvig 12-13 ára drengir
Stórsvig 14-15 ára stúlkur
Stórsvig 14-15 ára drengur
Svig 12-13 ára stúlkur
Svig 12-13 ára drengir
Svig 14-15 ára stúlkur
Svig 14-15 ára drengjr
Alpatvíkeppni 12-13 ára stúlkur
Alpatvíkeppni 12-13 ára drengir
Alpatvíkeppni 14-15 ára stúlkur
Alpatvíkeppni 14-15 ára drengir
Myndir frá laugaradagskvöldi á veglegu lokahófi UMÍ á Logni á Hótel Ísafirði.
Unglingameistaramót Íslands er mikilvægur hluti af uppbyggingu íþróttarinnar og ljóst er að framtíð skíðahreyfingarinnar er í góðum höndum ef marka má frammistöðu og þátttöku um liðna helgi á Ísafirði.
Skíðasambandið vill koma sérstökum þökkum á Skíðafélag Ísafjarðar og sjálfboðaliða fyrir frábæra mótshelgi sem og öllum keppendum og aðstandendum á mótinu.
Stórsvig 12 - 13 ára stúlkur

Stórsvig 12 - 13 ára drengir

Stórsvig 14 - 15 ára stúlkur

Stórsvig 14 - 15 drengir

Svig 12 - 13 ára stúlkur

Svig 12 - 13 ára drengir

Svig 14 - 15 ára stúlkur

Svig 14 - 15 ára drengir

Alpatvíkeppni 12 - 13 ára stúlkur

Alpatvíkeppni 12 - 13 ára drengir

Alpatvíkeppni 14 - 15 ára stúlkur

Alpatvíkeppni 14 - 15 ára drengir

Hlekkur á myndir frá mótinu