Frábær árangur hjá Jóni Erik – 2. sæti og bestu stórsvigspunktar ferilsins

Landsliðsmaðurinn og Ólympíufarinn Jón Erik Sigurðsson náði frábærum árangri í dag þegar hann hafnaði í 2. sæti á National Junior Championship mótinu í Val d’Isère.

Jón Erik var í 4. sæti eftir fyrri ferð, en sýndi mikinn styrk í seinni ferðinni þar sem hann var með besta tímann. Sá árangur dugði honum til að tryggja sér silfurverðlaunin. Þetta eru jafnframt bestu stórsvigs FIS-punktar sem Jón Erik hefur náð á ferlinum, sem undirstrikar framfarir hans og góða þróun á tímabilinu.

Fleiri landsliðsmenn tóku þátt í mótinu þar sem Tobias Hansen endaði í 11. sæti og Pétur Reidar Pétursson hafnaði í 19. sæti. Þeir Jón Erik, Tobias og Pétur Reidar eru þessa dagana þátttakendur í mótaröð í Val d’Isère, þar sem þeir halda áfram að safna dýrmætri reynslu og keppa við sterka keppendur.

Sjá úrslit hér

Á sama tíma eru landsliðsmennirnir Bjarni Þór Hauksson og Matthías Kristinsson staddir í Noregi, þar sem þeir munu taka þátt í mótum á næstu dögum í Kvitfjell, Hemsedal, Ål og Geilo. 

SKÍ náði tali af Jóni Erik eftir keppnina sem sagði:

„Geggjað að fá góð úrslit á lokametrunum á tímabilinu en við erum samt bara rétt að byrja.“

 Skíðasambandið óskar Jóni Erik innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og óskar öllum landsliðsmönnunum góðs gengis á næstu dögum.