Bikarmeistarar Skíðasambands Íslands í snjóbrettum fyrir keppnistímabilið 2025–2026 voru krýndir á lokahófi Snjóbrettamóts Íslands sem fram fór í Brettafélagi Hafnarfjarðar að keppni lokinni á laugardaginn.
Bikarkeppni SKÍ byggir á samanlögðum árangri keppenda yfir veturinn og voru bikarmeistaratitlar veittir í aldursflokkunum U13, U15 og U17, bæði í stúlkna- og drengjaflokkum, auk fullorðinsflokks karla og kvenna. Jafnframt var krýndur bikarmeistari félaga, sem byggir á samanlögðum árangri félags yfir tímabilið.
Mjög mjótt var á munum í liðakeppninni, þar sem Skíðafélag Akureyrar tryggði sér sigur með 3845 stigum, aðeins 24 stigum á undan Brettafélagi Hafnarfjarðar sem hlaut 3821 stig.
Í fullorðinsflokki karla varð Sigurður Ægir Filippusson úr Skíðafélagi Akureyrar bikarmeistari með 480 stig. Í fullorðinsflokki kvenna bar Steinunn María Þórarinsdóttir úr Brettafélagi Hafnarfjarðar sigur úr býtum og tryggði sér bikarmeistaratitilinn með 525 stig.
Brettafélag Hafnarfjarðar stóð fyrir lokahófinu þar sem verðlaun voru afhent og 66°Norður gaf bikarmeisturum og öðrum verðlaunahöfum glæsileg verðlaun.
Skíðasamband Íslands óskar öllum bikarmeisturum og verðlaunahöfum innilega til hamingju með uppskeru vetrarins.
Bikarmeistarar SKÍ 2026 – Snjóbretti
(Heildarstig – 3 efstu sæti)
Liðakeppni
- Skíðafélag Akureyrar (SKA) – 3845 stig
- Brettafélag Hafnarfjarðar (BFH) – 3821 stig
- Skíðafélag Dalvíkur (DAL) – 2837 stig
U13 – Drengir
- Garðar Einarsson – BFH – 500 stig
- Kolbeinn Friður Karlsson – BFH – 230 stig
- Hilmir Þór Hansen – SKA og Guðmundur Elí Ágústsson – SKA – jafnir með 160 stig
U13 – Stúlkur
- Hrafnhildur Freyja Filippusdóttir – SKA – 350 stig
- Daníela Björk Kristinsdóttir – DAL – 300 stig
- Adriana Maria Molina – DAL – 220 stig
U15 – Drengir
- Arnar Freyr Jóhannsson – BFH – 540 stig
- Óli Bjarni Ólason – SKA – 300 stig
- Benjamín Örn Birkisson – BFH – 250 stig
U15 – Stúlkur
- Steinunn María Þórarinsdóttir – BFH – 550 stig
- Lukka Viktorsdóttir – DAL – 465 stig
- Dagrún Katla Ævarsdóttir – SKA – 335 stig
U17 – Drengir
- Sigurður Ægir Filippusson – SKA – 600 stig
- Hafliði Sveinsson Zoëga – BFF – 320 stig
- Óliver Garðarsson – BFH – 140 stig
Fullorðinsflokkur – Karlar
- Sigurður Ægir Filippusson – SKA – 480 stig
- Arnar Freyr Jóhannsson – BFH – 405 stig
- Óli Bjarni Ólason – SKA – 248 stig
Fullorðinsflokkur – Konur
- Steinunn María Þórarinsdóttir – BFH – 525 stig
- Lukka Viktorsdóttir – DAL – 440 stig
- Dagrún Katla Ævarsdóttir – SKA – 320 stig
Sjá öll bikarúrslit hér







