Anna Kamilla Hlynsdóttir tvöfaldur Íslandsmeistari í snjóbrettum

Snjóbrettamót Íslands fór fram við frábærar aðstæður í Bláfjöllum á laugardaginn, þar sem veður lék við keppendur og skapaði kjöraðstæður til keppni. Keppt var bæði í brettastíl og risastökki sama dag, og um kvöldið fór fram lokahóf og verðlaunaafhending hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, sem var mótshaldari.

Flestir af bestu snjóbrettamönnum landsins voru mættir til leiks og ríkti frábær stemning og góð frammistaða í öllum flokkum, allt frá yngstu iðkendum upp í fullorðinsflokk.

Á mótinu stóð landsliðskonan Anna Kamilla Hlynsdóttir upp úr og varð tvöfaldur Íslandsmeistari kvenna með sannfærandi sigri bæði í brettastíl og risastökki. Í karlaflokki vann Jökull Bergmann Kristjánsson Íslandsmeistaratitilinn í brettastíl, en Borgþór Ómar Jóhannsson bar sigur úr býtum í risastökki. Mótið var jafnframt alþjóðlegt FIS-mót og gaf keppendum í eldri flokkum tækifæri til að vinna alþjóðleg stig.

Góð breidd sást í yngri flokkum, þar sem margir keppendur sýndu flotta takta og greinilegar framfarir.
 

Skíðasamband Íslands óskar öllum Íslandsmeisturum og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn. Jafnframt færir sambandið Brettafélagi Hafnarfjarðar og öllum sjálfboðaliðum kærar þakkir fyrir vel heppnað mót, framlag þeirra er ómetanlegt.

Sjá úrslit hér úr FIS mótunum

Snjóbrettamót Íslands – Brettastíll

U9

  1. Anton Bói Hannesson - BFH
  2. Leó Smári Grétarsson Hagalín - BFF
  3. Haukur Alexander Arnarsson - BFH

U11

  1. Rúnar Áki Friðjónsson - Dalvík
  2. Úlfur Máni Steinarsson Molina - BFH
  3. Erik Ingi Ólason - SKA

U13

  1. Garðar Einarsson - BFH
  2. Kolbeinn Friður Karlsson - BFH
  3. Ísar Máni Hraundal - BFH

U15

  1. Arnar Freyr Jóhannsson - BFH
  2. Alan Zielinski - BFH
  3. Benjamín Örn Birkisson - BFH

U17

  1. Sigurður Ægir Filippusson - SKA
  2. Hafliði Sveinsson Zoëga - BFF

Fullorðinskarlar

  1. Jökull Bergmann Kristjánsson - SKA
  2. Borgþór Ómar Jóhannsson - BFH

U13 – konur

  1. Hrafnhildur Freyja Filippusdóttir - SKA

U15 – konur

  1. Lukka Viktorsdóttir - Dalvík
  2. Lovísa Lilja Friðjónsdóttir - Dalvík
  3. Dagrún Katla Ævarsdóttir - SKA

Fullorðinskonur

  1. Anna Kamilla Hlynsdóttir - BFH 
  2. Lovísa Lilja Friðjónsdóttir - Dalvík
  3. Dagrún Katla Ævarsdóttir - SKA

Snjóbrettamót Íslands – Risa stökk

U9

  1. Anton Bói Hannesson - BFH
  2. Haukur Alexander Arnarsson - BFH
  3. Leó Smári Grétarsson Hagalín - BFF

U11

  1. Rúnar Áki Friðjónsson - Dalvík
  2. Erik Ingi Ólason - SKA

U13

  1. Kolbeinn Friður Karlsson - BFH
  2. Garðar Einarsson - BFH

U15

  1. Arnar Freyr Jóhannsson - BFH
  2. Benjamín Örn Birkisson - BFH
  3. Alan Zielinski - BFH

U17

  1. Sigurður Ægir Filippusson - SKA
  2. Hafliði Sveinsson Zoëga - BFF

Fullorðinskarlar

  1. Borgþór Ómar Jóhannsson - BFH
  2. Jökull Bergmann Kristjánsson - SKA
  3. Sigurður Ægir Filippusson - SKA

U13 – konur

  1. Hrafnhildur Freyja Filippusdóttir - SKA

U15 – konur

  1. Steinunn María Þórarinsdóttir - BFH
  2. Silja Marínósdóttir - SKA
  3. Guðný Jóna Jónsdóttir - Dalvík

Fullorðinskonur

  1. Anna Kamilla Hlynsdóttir - BFH
  2. Steinunn María Þórarinsdóttir - BFH
  3. Silja Marínósdóttir - SKA