Skíðamaðurinn og Ólympíufarinn Tómas Leifsson var heiðraður með Heiðursstjörnu Skíðasambands Íslands við setningu fimmtugustu Andrésar Andar leikanna, sem fram fór miðvikudaginn 22. apríl síðastliðinn.
Heiðursstjarna SKÍ er æðsta viðurkenning sambandsins og veitist aðeins undir sérstökum kringumstæðum þeim einstaklingum sem unnið hafa skíða- og snjóbrettaíþróttinni ómetanlegt gagn um árabil.
Tómas, eða Tommi eins og hann er jafnan kallaður, er mörgum skíðamönnum vel kunnur. Akureyringurinn hefur stundað skíðaíþróttina frá blautu barnsbeini og kemur úr mikilli skíðafjölskyldu. Faðir hans, Leifur Tómasson, var einn af stofnendum Andrésar Andar leikanna og sá sem gaf þeim nafnið sem þau bera enn í dag.
Á sínum yngri árum var Tómas öflugur afreksmaður og keppti meðal annars á Vetrarólympíuleikunum í Innsbruck í Austurríki árið 1976 eða fyrir fimmtíu árum síðan, sama ár og Andrésar Andar leikarnir voru fyrst haldnir. Þá má einnig nefna að systir hans, Nanna Herborg Leifsdóttir, keppti á Vetrarólympíuleikunum í Sarajevo árið 1984, sem undirstrikar enn frekar þann sterka skíðaarf sem fjölskyldan býr yfir.
Síðastliðna áratugi hefur Tómas verið óþreytandi í starfi fyrir Skíðafélag Akureyrar. Hann hefur ávallt verið boðinn og búinn að leggja sitt af mörkum, hvort sem er við skipulag og framkvæmd skíðamóta eða önnur verkefni þegar á þarf að halda.
Hann er mikil fyrirmynd innan félagsins og lifandi dæmi um þann sterka mannauð sem skíðahreyfingin á Akureyri býr yfir. Það er vart hægt að finna dag þar sem opið er í Hlíðarfjalli án þess að Tommi sé á staðnum, fylgist með, styður við bakið á iðkendum og nýtur þess að vera hluti af íþróttinni.
Áhugi Tómasar á skíðaíþróttinni hefur aldrei dvínað. Hann ferðast reglulega um landið til að fylgjast með Skíðamóti Íslands og öðrum viðburðum.
Í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá þátttöku hans á Ólympíuleikum fór hann nýverið ásamt vini sínum, Árna Óðinssyni, sem einnig keppti á leikunum og er Akureyringur líkt og Tommi, til Bormio á Ítalíu til að fylgjast með alpagreinum karla og styðja við okkar keppanda, Jón Erik Sigurðsson.
Það var Gísli Reynisson, formaður Skíðasambands Íslands, sem afhenti Tómasi Heiðursstjörnu SKÍ við hátíðlega athöfn.
Með veitingu viðurkenningarinnar vill Skíðasamband Íslands þakka Tómasi Leifssyni fyrir ómetanlegt framlag hans til skíðaíþróttarinnar í gegnum árin, bæði sem afreksmaður og ekki síður sem ötull sjálfboðaliði og fyrirmynd.

Árni Óðinsson, Jón Erik Sigurðsson og Tómas Leifsson í Bormio 2026