Landsliðskonan og Ólympíufarinn Kristrún Guðnadóttir hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að leggja keppnisskíðin á hilluna og gefa ekki kost á sér áfram í landsliði Íslands í skíðagöngu.
Kristrún gekkst nýverið undir aðgerð á hné eftir að hún meiddist alvarlega fyrir nokkrum vikum. Að sögn lækna er áverkinn þess eðlis að ekki telst raunhæft að hún geti haldið áfram keppni á því afreksstigi sem hún hefur verið á undanfarin ár.
Ákvörðunin hefur verið henni þung, enda hefur Kristrún á ferli sínum sýnt einstaka þrautseigju og óbilandi vilja til að koma sterk til baka eftir ítrekuð meiðsli. Hún hefur ítrekað sannað sig sem einn fremsti og dugmesti keppandi Íslands í skíðagöngu.
Kristrún á að baki glæsilegan alþjóðlegan feril og hefur keppt á tveimur Ólympíuleikum, með þrjár rásir að baki:
Hún hefur jafnframt tekið þátt í þremur heimsmeistaramótum og gengið alls sex rásir:
Á ferlinum keppti Kristrún í 164 alþjóðlegum FIS-keppnum, varð 14 sinnum Íslandsmeistari í einstaklingsgreinum og vann jafnframt til sjö silfurverðlauna og tveggja bronsverðlauna á Skíðamóti Íslands.
Besta árangri sínum á alþjóðavettvangi náði hún í desember 2023 þegar hún hafnaði í 14. sæti í Scandinavian Cup í Vuokatti í Finnlandi. Þar að auki á Kristrún besta tíma allra íslenskra kvenna frá upphafi í Vasaloppet (Vasagöngunni), einni virtustu skíðagöngu heims.
Kristrún hefur ekki aðeins skarað fram úr sem afreksíþróttamaður, heldur einnig verið afar mikilvæg fyrirmynd innan íslensku skíðahreyfingarinnar. Hún hefur haft jákvæð áhrif á liðsheild landsliðsins, sýnt leiðtogahæfni í daglegu starfi og verið hvatning fyrir yngri iðkendur, ekki síst ungar stúlkur í íþróttinni.
Kristrún hyggst nú, meðal annars, snúa sér að störfum innan skíðahreyfingarinnar. Hún hefur lýst áhuga á að vinna að verkefnum í samstarfi við Skíðasamband Íslands, meðal annars tengdum afrekshópi, hæfileikamótun og að efla þátttöku stúlkna í skíðaíþróttum.
Skíðasamband Íslands færir Kristrúnu Guðnadóttur innilegar þakkir fyrir hennar ómetanlega framlag til íslenskrar skíðagöngu og óskar henni alls hins besta í komandi verkefnum og framtíðinni.