SKÍ auglýsir eftir aðstoðarfólki á HM og HM unglinga í alpagreinum og skíðagöngu 2027

Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskar eftir umsóknum frá áhugasömum einstaklingum til að sinna verkefnum á HM og HM unglinga í alpagreinum og HM unglinga í skíðagöngu árið 2027.

Leitað er að einstaklingum til að styrkja þjálfara- og þjónustuteymi á mótunum og aðstoða við undirbúning og þátttöku íslenskra keppenda.

Auglýst er eftir:

  • Alpagreinar – HM og HM unglinga: Aðstoðarþjálfara til að starfa með landsliðsþjálfara á mótunum.

  • Skíðaganga – HM unglinga: Smurningsfólki og skíðatesturum.

Leitað er að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingum sem hafa reynslu og þekkingu á viðkomandi sviði og áhuga á að starfa með íslenskum keppendum á alþjóðlegum stórmótum.

Fyrirvari vegna HM unglinga í alpagreinum

Ekki hefur enn verið tekin endanleg ákvörðun um þátttöku Íslands á HM unglinga í alpagreinum. SKÍ vill engu að síður auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum tímanlega svo hægt sé að undirbúa þátttöku og manna viðkomandi stöður ef ákveðið verður að senda keppendur á mótið.

Umsóknir og nánari upplýsingar

Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn með upplýsingum um reynslu sína og þjálfaramenntun, eftir því sem við á, og hvaða verkefnum eða mótum þeir hafa áhuga á.

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2026.

Umsóknir sendist á: brynja@ski.is

Nánari upplýsingar veitir Brynja, afreksstjóri SKÍ, í síma 846-0420 eða með tölvupósti á brynja@ski.is.

Skíðasamband Íslands hvetur alla áhugasama og hæfa einstaklinga til að sækja um.