SKÍ óskar eftir umsóknum frá félögum til að halda Hæfileikamótun í alpagreinum

Skíðasamband Íslands óskar eftir umsóknum frá skíðafélögum sem hafa áhuga á að taka að sér framkvæmd æfingabúða á snjó fyrir Hæfileikamótun í alpagreinum dagana 27.–29. nóvember 2026, fyrir árganga 2009–2012.

Fram undan er spennandi skíðavetur og æfingabúðirnar verða frábært tækifæri fyrir unga og efnilega skíðaiðkendur til að koma saman, æfa við góðar aðstæður og hefja veturinn af krafti!

Gert er ráð fyrir að það félag sem tekur verkefnið að sér sjái um gistingu og fæði við hæfi ásamt því að útvega starfsfólk til að halda utan um hópinn utan skipulagðrar dagskrár. Einnig er lögð áhersla á að sem flestir þjálfarar sem koma að verkefninu séu úr heimahéraði.

SKÍ hvetur áhugasöm félög til að sækja um og taka þátt í að skapa skemmtilega og metnaðarfulla umgjörð um Hæfileikamótun í alpagreinum.

Áhugasöm félög eru hvött til að senda umsókn eða fyrirspurnir á brynja@ski.is.