Skíðafélag Ólafsfjarðar 25 ára – þrír sjálfboðaliðar heiðraðir

Skíðafélag Ólafsfjarðar (SÓ) var stofnað 18. október 2001 og hélt upp á tímamótin með kaffisamsæti í Tjarnarborg sunnudaginn 18. október, á sjálfan afmælisdaginn. Kristján Hauksson, formaður félagsins, rifjaði upp sögu þess, en skíðaiðkun á Ólafsfirði á sér lengri sögu en félagið sjálft. Á þessum 25 árum hefur félagið meðal annars keypt snjótroðara, byggt upp mannvirki og bætt aðstöðuna á skíðasvæðinu jafnt og þétt, auk þess að halda skíðamót í samstarfi við Skíðafélag Dalvíkur.

Gestir fengu líka að kynnast skíðaskotfimi, en félagið á fjóra leysiriffla og skotmörk sem hægt var að prófa á staðnum.

Gull- og silfurmerki SKÍ

Ólafur Björnsson var fulltrúi Skíðasambands Íslands á afmælinu og afhenti viðurkenningarnar fyrir hönd sambandsins.

Haukur Sigurðsson hlaut gullmerki SKÍ. Hann hefur komið að skíðaíþróttinni í yfir 50 ár, fyrst sem keppandi og margfaldur Íslandsmeistari í skíðagöngu. Haukur keppti fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í Lake Placid 1980 og á heimsmeistaramótinu í Osló 1982 og hefur síðan miðlað reynslu sinni sem þjálfari barna og unglinga. Í dag er hann afar virkur sjálfboðaliði hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar og kemur meðal annars að mótahaldi.

Sigurpáll Gunnarsson, Palli, hlaut silfurmerki SKÍ. Hann æfði skíði sem barn og unglingur og sneri aftur í íþróttina þegar börnin hans fóru að æfa og keppa. Palli varð fljótt öflugur sjálfboðaliði í starfi félagsins og var formaður Skíðafélags Ólafsfjarðar árin 2008–2016.

Alda María Traustadóttir hlaut einnig silfurmerki SKÍ. Hún kom inn í skíðadeild Leifturs um 1990 og hefur verið ötull sjálfboðaliði allar götur síðan, meðal annars við byggingu skíðaskálans í Tindaöxl, í dósamóttöku félagsins og í sjoppunni í skálanum um árabil. Nú fylgir hún barnabörnunum á skíðum og er enn virk í starfi félagsins.

Gervigras og miklar framkvæmdir í haust

Sjálfboðaliðar félagsins hafa ekki setið auðum höndum í haust. Ein skemmtilegasta nýjungin er gervigras sem félagið fékk í sumar og verður prófað á völdum stöðum í vetur, meðal annars undir skíðalyftunni. Með því vill félagið bæði verjast lúpínu, sem hefur valdið skemmdum á skíðasvæðinu, og fá betra undirlag sem heldur betur í snjóinn.

Í Bárubraut hefur skíðagöngubrautin verið breikkuð samkvæmt fjögurra ára framkvæmdaáætlun svo hún uppfylli kröfur FIS um keppnisbrautir, og brautarsporið dýpkað á köflum. Í Tindaöxl er verið að skipta eldri ljósum út fyrir LED-kastara, nýr ljósastaur rís við efstu stöð lyftunnar og ný öryggislína er lögð í jörðu alla leið á topp. Þá hafa snjógirðingar verið endurnýjaðar með timburgirðingum, skíðaskálinn málaður og svalirnar endurbyggðar, og undirbúningur er hafinn að nýju barnasvæði.

Framkvæmdirnar eru að mestu unnar í sjálfboðavinnu og fjármagnaðar að stórum hluta með samningi félagsins við Fjallabyggð. Stefnt er að því að svæðið verði tilbúið fyrir veturinn.

Fram undan hjá félaginu er meðal annars Fjarðargangan, sem fer fram 13. febrúar 2027, auk alþjóðlegs skíðagöngumóts í vetur.

Skíðasamband Íslands óskar Skíðafélagi Ólafsfjarðar innilega til hamingju með 25 ára afmælið og þakkar sjálfboðaliðum félagsins fyrir þeirra mikilvæga starf.

Hlekkur á frétt með myndum frá framkvæmdunum HÉR