Alpagreinalandsliðið hóf keppnistímabilið á tveimur svigmótum í Kåbdalis í Svíþjóð um helgina

Þrir keppendur úr A-landsliðinu í alpagreinum, Gauti Guðmundsson, Jón Erik Sigurðsson og Matthías Kristinsson, hófu veturinn á tveimur FIS-svigmótum í Kåbdalis í Svíþjóð um helgina, laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. nóvember.

Svig, sunnudaginn 15. nóvember

Matthías Kristinsson (Skíðafélag Ólafsfjarðar) náði bestum árangri Íslendinganna og varð í 18. sæti af 109 keppendum sem hófu keppni. Hann var í 25. sæti eftir fyrri ferð en átti 11. besta tímann í seinni ferð og vann sig upp um sjö sæti.

Gauti Guðmundsson (KR) varð í 20. sæti. Hann var í 28. sæti eftir fyrri ferð, átti 16. besta tímann í seinni ferð og vann sig upp um átta sæti. Jón Erik Sigurðsson (Fram) lauk ekki keppni í fyrri ferð.

Norðmaðurinn Jarand Husby Haugen sigraði, Svisslendingurinn Sandro Simonet varð annar og Norðmaðurinn Eirik Schau Giskaas þriðji.

Svig, laugardaginn 14. nóvember

Gauti varð í 23. sæti af 112 keppendum sem hófu keppni. Jón Erik lauk ekki keppni í fyrri ferð og Matthías lauk ekki keppni í seinni ferð.

Eirik Schau Giskaas frá Noregi sigraði, landi hans Jarand Husby Haugen varð annar og Frakkinn Sacha Dimier Chambet þriðji.

Bjarni Þór aftur kominn á skíði eftir meiðsli

Bjarni Þór Hauksson gat ekki tekið þátt í mótunum í Kåbdalis þar sem hann meiddist á æfingu í Pitztal á dögunum. Sem betur fer er Bjarni Þór nú kominn aftur á skíði og vonum við að hann nái sér að fullu sem fyrst og geti fljótlega snúið aftur til keppni.

Næstu verkefni landsliðanna

Bæði A- og B-landsliðið í alpagreinum halda til Levi í Finnlandi í dag, þar sem fram undan eru æfingar og undirbúningur fyrir næstu keppnir. Liðin munu síðan taka þátt í mótum í Levi í lok nóvember.

Tveir keppendur úr A-landsliðinu munu einnig taka þátt í Evrópubikarmótum (Europa Cup) í svigi í Suomu í Finnlandi dagana 25. og 26. nóvember.

Fram undan eru því spennandi verkefni hjá íslenska landsliðsfólkinu í alpagreinum á næstu vikum.