Keppnistímabilið byrjað hjá Skíðagöngulandsliðinu, Fróði með besta árangur Íslendinganna í Finnlandi

Íslenska landsliðið í skíðagöngu hóf veturinn á þriggja daga FIS-móti í Ólos í Muonio í Finnlandi. Keppt var í 1,2 km sprettgöngu með hefðbundinni aðferð föstudaginn 13. nóvember, 10 km göngu með hefðbundinni aðferð laugardaginn 14. nóvember og 10 km göngu með frjálsri aðferð sunnudaginn 15. nóvember. Báðar 10 km göngurnar voru með einstaklingsstart og mótið var afar sterkt skipað.

Byrjunin lofar góðu því allir fimm keppendurnir náðu, í að minnsta kosti einni grein, árangri sem er undir punktastöðu þeirra á gildandi FIS-lista. 

10 km ganga með frjálsri aðferð, sunnudaginn 15. nóvember

Fróði Hymer (Ullur) úr B-landsliðinu átti sinn besta dag um helgina og varð í 36. sæti af 147 keppendum sem luku keppni. Hann bætti sig þar mjög frá laugardeginum, þegar hann varð í 113. sæti. Fróði fékk 88,99 FIS-punkta fyrir gönguna, sem eru bestu punktar hans á ferlinum, en hann er með 151,96 punkta á FIS-listanum og besti árangur hans fram að þessu var 110,41.

Dagur Benediktsson (SFÍ) úr A-landsliðinu varð í 51. sæti, Einar Árni Gíslason (SKA) úr A-landsliðinu í 72. sæti og Grétar Smári Samúelsson (SFÍ) úr B-landsliðinu í 106. sæti. Ástmar Helgi Kristinsson var ekki á ráslista á sunnudag.

„Náði að sýna hvaða level ég er að halda“

„Sunnudagurinn var bara mjög góður dagur. Það var virkilega gott að finna fyrir því að keppa á því level sem maður hefur verið að halda á æfingum í haust, ekki síst þar sem tímabilið í fyrra varð svona slæmt vegna magavandamála,“ segir Fróði Hymer.

„Eftir þunga keppni á laugardeginum, þar sem hausinn var ekki alveg á réttum stað, var um að gera að breyta hugarfarinu fyrir sunnudaginn. Það tókst og ég náði að sýna hvaða level ég er að halda. Það er gott að ná árangri eftir mjög gott æfingahaust.“

Þýski göngumaðurinn Jakob Elias Moch sigraði, Finninn Petteri Koivisto varð annar og Friedrich Moch frá Þýskalandi þriðji.

10 km ganga með hefðbundinni aðferð, laugardaginn 14. nóvember

Einar Árni náði bestum árangri Íslendinganna á laugardag og varð í 76. sæti af 179 keppendum sem luku keppni, og Dagur fylgdi fast á eftir í 77. sæti. Fróði varð í 113. sæti, Ástmar Helgi Kristinsson (SFÍ) úr B-landsliðinu í 128. sæti og Grétar Smári í 152. sæti.

Einar Árni og Ástmar Helgi skiluðu báðir árangri undir punktastöðu sinni á FIS-listanum. Einar Árni fékk 114,29 FIS-punkta (er með 114,79) og Ástmar Helgi 171,34 (er með 172,75).

Savelii Korostelev, sem keppir sem hlutlaus íþróttamaður (AIN), sigraði. Finninn Ari Luusua varð annar og Norðmaðurinn Erik Valnes þriðji.

Sprettganga, föstudaginn 13. nóvember

Dagur, Ástmar Helgi og Grétar Smári kepptu í sprettgöngunni á föstudag. Dagur varð í 70. sæti af 98 keppendum í tímatökunni, Ástmar Helgi í 75. sæti og Grétar Smári í 77. sæti.

Allir þrír skiluðu árangri undir punktastöðu sinni í sprettgöngu. Mestu munaði hjá Grétari Smára, sem fékk 226,27 FIS-punkta en er með 283,04 á listanum. Ástmar Helgi fékk 223,91 (er með 242,88) og Dagur 195,43 (er með 208,78).

Norðmaðurinn Erik Valnes sigraði í sprettgöngunni, Benjamin Moser frá Austurríki varð annar og Finninn Niilo Moilanen þriðji.

Næstu verkefni landsliðsins

Keppnistímabilið heldur áfram strax um næstu helgi þegar fjórir landsliðsmenn verða aftur á ferðinni.

Dagur Benediktsson og Einar Árni Gíslason munu keppa í Bruksvallarna í Svíþjóð, á meðan Fróði Hymer og Ástmar Helgi Kristinsson taka þátt í keppni í Beitostølen í Noregi.

Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu eftir góða byrjun íslenska hópsins í Finnlandi.

 

Hlekkur á úrslit helgarinnar HÉR