Á þingi Alþjóða skíðaskotfimisambandsins (IBU) í Berchtesgaden í Þýskalandi um helgina var umsókn Skíðasambands Íslands (SKÍ) um fulla aðild að sambandinu samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir uppbyggingu skíðaskotfimi á Íslandi. Skíðaskotfimi er ein þeirra íþróttagreina sem starfræktar eru innan vébanda SKÍ, ásamt alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og skíðafimi.


Fulltrúar SKÍ á þinginu voru Sigurður Hauksson, framkvæmdastjóri, Veronika Guseva, formaður skíðaskotfiminefndar, og Ingólfur Hannesson, ráðgjafi og heiðursfélagi IBU.
Með fullri aðild öðlast SKÍ aðgang að fjölbreyttum útbreiðslu‑ og uppbyggingarverkefnum IBU, en sambandið hefur vaxið hraðar á undanförnum árum og áratugum en flest önnur alþjóðasambönd innan íþrótta.


Olle Dahlin, forseti IBU, lýsti yfir mikilli ánægju með aðild Íslands og það starf sem unnið hefur verið síðustu ár:
„Við hófum í raun þessa vegferð árið 2008 þegar við Ingólfur áttum spjall á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Vegferðin hefur því verið löng. Það er sérstaklega gleðilegt fyrir okkur hjá IBU að sérstök áhersla SKÍ er á að kynna okkar frábæru íþrótt fyrir börnum og unglingum. “
