Það var góður andi í Drift EA á Akureyri um liðna helgi þegar 77. Skíðaþing fór fram á 80 ára afmælisári Skíðasambandsins. Yfir 50 manns sóttu þingið. Einn af hápunktum helgarinnar var vinnustofa um stefnumótun, þar sem þingfulltrúar víðs vegar af landinu tóku höndum saman og lögðu grunn að framtíðarsýn skíðahreyfingarinnar.
Markmiðið var að heyra raddir hreyfingarinnar sjálfrar um stefnuna til framtíðar. Í hópavinnu var rætt um hlutverk sambandsins, innviði, afreksstarf og þau gildi sem eiga að einkenna skíðafólk á Íslandi. Umræðurnar voru faglegar og líflegar og að lokum kynntu sjö hópar niðurstöður sínar í pontu. Eitt var skýrt: samstaðan er mikil og viljinn til að vinna saman enn meiri. Stjórn SKÍ vinnur nú úr hugmyndunum, kynnir þær á nýju ári og leggur afraksturinn fyrir næsta Skíðaþing.
Að vinnustofunni lokinni voru flutt þrjú erindi. Gauti Geirsson, fulltrúi Skíðafélags Ísfirðinga, fór yfir uppbyggingu skíðaaðstöðunnar á Ísafirði og framtíðarmöguleika svæðisins. Hörður Finnbogason fjallaði fyrir hönd skíðasvæða landsins um mikilvægi aukinnar samvinnu svæðanna og sameiginlegrar sýnar þeirra og SKÍ. Að lokum kynnti Fjalar Úlfarsson, formaður Andrésarnefndar SKA, breytingar á skráningu á Andrésar Andarleikana og gjaldskrá fyrir árið 2027.

Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, ávarpaði þingið og flutti kveðjur frá forseta ÍSÍ. Hann hrósaði Skíðafélagi Akureyrar og Akureyrarbæ fyrir öflugt starf og þakkaði SKÍ fyrir gott samstarf.. Hann minnti jafnframt á að Skíðaþing væri ekki aðeins vettvangur formlegra ákvarðana heldur einnig til að móta sameiginlega framtíðarsýn hreyfingarinnar.

Margt fleira var á dagskrá. Ný Afreksstefna SKÍ var kynnt og farið yfir árangur síðasta vetrar, þar sem Ólympíuleikarnir 2026 stóðu upp úr. Skíðaskotfimin fagnaði fullri aðild að Alþjóðaskíðaskotfimisambandinu (IBU). Kristrúnu Guðnadóttur var þakkað fyrir farsælan feril í skíðagöngu og sat hún jafnframt sitt fyrsta Skíðaþing. Reikningar, mótaskrá vetrarins og fjölmargar tillögur voru afgreidd. Þá var Hugrúnu Elvarsdóttur þakkað fyrir störf sín í stjórn og Hulda Björk Haraldsdóttir boðin velkomin í hennar stað. Með þessari breytingu eiga nú allir landshlutar fulltrúa í stjórn SKÍ.

Á þinginu voru nokkrir af máttarstólpum skíðaíþróttarinnar á Akureyri heiðraðir fyrir ómetanlegt starf í þágu Skíðafélags Akureyrar og skíðahreyfingarinnar.
Silfurmerki SKÍ
Arna Ívarsdóttir
Erlingur Guðmundsson
Eyrún Björg Þorfinnsdóttir
Guðjón Marteinsson
Sólrún Tryggvadóttir
Friðbjörn Benediktsson
Eyþór Ólafur Bergmannsson
Gullmerki SKÍ
Kolbrún Ingólfsdóttir
Kristján Vilhelmsson
Skíðafélag Strandamanna hlaut jafnframt þakkarskjöld fyrir framúrskarandi starf í skíðaskotfimi, en Strandamenn hafa átt lykilþátt í uppbyggingu greinarinnar hér á landi.

Næsta Skíðaþing verður haldið á Austurlandi. Nánar verður gerð grein fyrir niðurstöðum þingsins í þinggerð sem birt verður á næstu dögum. Við þökkum Skíðafélagi Akureyrar fyrir frábærar móttökur og öllum þingfulltrúum fyrir kraftmikið þing. Nú er bara að bíða eftir snjónum!