Íslenskir skíðagöngumenn náðu góðum árangri á FIS-mótum í Svíþjóð og Noregi dagana 20.–22. nóvember. Einar Árni Gíslason náði sínum bestu FIS-punktum á ferlinum í Bruksvallarna, á meðan Fróði Hymer átti sína bestu göngu með frjálsri aðferð til þessa í Beitostølen og sína bestu göngu með hefðbundinni aðferð í mjög langan tíma. Ástmar Helgi Kristinsson bætti jafnframt sína bestu FIS-punkta í sprettgöngu.
Einar Árni Gíslason (SKA), sem er í A-landsliði Íslands í skíðagöngu, keppti á þriggja daga FIS-móti í Bruksvallarna í Svíþjóð dagana 20.–22. nóvember.
Einar Árni átti sína bestu göngu á ferlinum á lokadegi mótsins, sunnudaginn 22. nóvember, þegar keppt var í 10 km göngu með frjálsri aðferð. Hann hafnaði í 70. sæti á tímanum 25:25,8 mínútum og hlaut 111,29 FIS-punkta, sem eru bestu FIS-punktar hans á ferlinum.
Árangurinn er mikilvægur áfangi hjá Einari Árna og sýnir góðar framfarir hans í upphafi keppnistímabilsins.
Einar Árni keppti einnig í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð á laugardeginum og hafnaði þar í 86. sæti af 166 keppendum. Á föstudeginum varð hann í 118. sæti af 136 keppendum í 1,4 km sprettgöngu með hefðbundinni aðferð.
Ævar Freyr Valbjörnsson keppti einnig á mótinu. Hann varð í 123. sæti í sprettgöngunni á föstudag, 130. sæti í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð á laugardag og 158. sæti í 10 km göngu með frjálsri aðferð á sunnudag.
Dagur Benediktsson (SFÍ), sem einnig er í A-landsliðinu, var skráður til leiks um helgina en þurfti að draga sig úr keppni vegna veikinda.
Fróði Hymer (Ullur) og Ástmar Helgi Kristinsson (SFÍ), sem báðir eru í B-landsliði Íslands í skíðagöngu, kepptu á FIS-móti í Beitostølen í Noregi dagana 20.–22. nóvember.
Fróði átti sérstaklega góða keppnishelgi og sýndi sterka frammistöðu bæði í hefðbundinni og frjálsri aðferð.
Á föstudaginn var keppt í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð, þar sem Fróði hafnaði í 70. sæti af 162 keppendum sem luku keppni. Þar átti hann sína bestu göngu með hefðbundinni aðferð í mjög langan tíma.
Á sunnudaginn fylgdi Fróði árangrinum eftir með sinni bestu göngu með frjálsri aðferð á ferlinum. Þá var keppt í 15 km göngu með einstaklingsræsingu og hafnaði hann í 57. sæti á tímanum 34:40,6 mínútum. Fyrir árangurinn hlaut hann 99,14 FIS-punkta.
Ástmar Helgi Kristinsson náði einnig góðum árangri í Beitostølen þegar hann bætti sína bestu FIS-punkta í sprettgöngu á laugardaginn.
Keppt var í 1,3 km sprettgöngu með hefðbundinni aðferð og hafnaði Ástmar Helgi í 89. sæti af 113 keppendum. Hann hlaut 188,32 FIS-punkta fyrir árangurinn og bætti þar með fyrri besta árangur sinn, sem var 210,41 punktur.
Fróði Hymer varð í 88. sæti í sömu keppni.
Ástmar Helgi keppti einnig í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð á föstudeginum og hafnaði þar í 130. sæti.
Skíðasamband Íslands óskar keppendunum til hamingju með góðan árangur og framfarir um helgina.
Úrslit mótanna: