Matthías Kristinsson í 48. sæti í Evrópubikarnum í Suomu

Matthías Kristinsson svaraði fyrir sig á öðrum keppnisdegi í Suomu í Finnlandi og skilaði sér í mark í 48. sæti af 102 keppendum í svigi í Evrópubikarnum.

Matthías Kristinsson (Skíðafélag Ólafsfjarðar) úr A-landsliðinu í alpagreinum keppti í tveimur svigmótum í Evrópubikarnum í Suomu í Finnlandi, miðvikudaginn 25. og fimmtudaginn 26. nóvember. Með honum var liðsfélaginn Jón Erik Sigurðsson (Fram), einnig úr A-landsliðinu.

Matthías í mark á fimmtudag

Matthías lauk ekki fyrri ferðinni á miðvikudag en svaraði fyrir sig daginn eftir. Hann kláraði báðar ferðirnar og endaði í 48. sæti af 102 keppendum frá 23 þjóðum. Það var enginn hægðarleikur að komast í mark: 38 keppendur luku ekki fyrri ferðinni og aðeins 55 kláruðu báðar ferðirnar.

Þetta var í fjórða sinn sem Matthías keppir í Evrópubikarnum og í annað sinn sem hann lýkur keppni þar. Besti árangur hans í mótaröðinni er 45. sæti í svigi í Obereggen á Ítalíu í desember í fyrra.

Næsta Evrópubikarmót Matthíasar er einmitt svig í Obereggen 18. desember og daginn eftir, 19. desember, keppir hann í svigi í Val di Fassa. Báðir staðirnir eru á Ítalíu.

Svíinn Kristoffer Jakobsen sigraði, landi hans Gustav Wissting varð annar og Norðmaðurinn Elias Kvael þriðji.

Frumraun Jóns Eriks

Jón Erik keppti í Suomu í fyrsta sinn í Evrópubikarnum á ferlinum. Hann lauk ekki fyrri ferðinni hvorugan daginn.

Miðvikudagur 25. nóvember

Á fyrri keppnisdeginum hófu 103 keppendur frá 23 þjóðum keppni og 42 þeirra luku ekki fyrri ferðinni, þar á meðal báðir Íslendingarnir. 47 kláruðu báðar ferðirnar. Frakkinn Hugo Desgrippes sigraði, Svíinn Gustav Wissting varð annar og Norðmaðurinn Elias Kvael þriðji.

Skíðasambandið óskar Matthíasi til hamingju með árangurinn. 

Úrslit beggja mótanna má sjá á vef FIS.