Þjálfari 2 námskeið í alpagreinum

Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir skíðaþjálfara í alpagreinum 16.- 19. maí á Akureyri. Námskeiðið er sérgreinahluti Þjálfari 2 réttinda og verður kennt eftir nýju kennsluefni sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði. Námskeiðið verður í formi verklegra æfinga á snjó ásamt heimavinnu. 
Heimavinnuhlutinn verður unninn í gegnum netið fyrir námskeið, opnað verður fyrir þann hluta 2 vikum áður en námskeiðið hefst.

Dagskrá með fyrirvara um breytingar:
Fimmtudagur 16. maí kl 09-16 Skrifstofa SKÍ
Föstudagur 17. maí kl. 9-17 Hlíðarfjall
Laugardagur 18. maí kl. 9-17 Hlíðarfjall
Sunnudagur 19. maí kl. 9-17 Hlíðarfjall

Leiðbeinendi verður Stephen Helfenbein (USA) og mun námskeiðið fara fram á ensku.

Þáttökugjald er 40.000 kr. og greiðist við skráningu. Skráning er á netfangið sigurgeir@ski.is og er skráningarfrestur til og með 1. maí. Aðeins 10 sæti eru í boði á þetta námskeið og gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Lágmarksþátttaka eru 6 þátttakendur svo að námskeiðið fari fram.
Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur. 

Inntökuskilyrði:
Til þess að eiga rétt á að sitja námskeiðið þarf viðkomandi að hafa lokið bæði fyrsta stigs sérgreinahluta SKÍ og almennum hluta ÍSÍ.
SKÍ mun horfa til reynslu þjálfara ef þeim kröfum er ekki mætt og gefur sér rétt á að meta hvert tilfelli fyrir sig útfrá þeim punktum sem taldir eru upp hér að neðan. 

  • Hafa sótt námskeið á vegum SKÍ eða sambærilegs aðila á síðustu 5 árum.
  • Hafa þjálfað samtals í 5 tímabil á síðustu 10 árum.
  • Hafa þjálfað iðkendur 12 ára eða eldri á síðustu 5 árum.

SKÍ gefur sér rétt á að meta hvert tilfelli fyrir sig óháð þeim kröfum sem taldar hafa verið upp. Allir áhugasamir eru því hvattir til þess að senda inn skráningu með upplýsingum um fyrri störf.

Nánari upplýsingar veitir Sigurgeir Halldórsson á netfanginu sigurgeir@ski.is.
SKÍ áskilur sér heimild til þess að fresta eða aflýsa námskeiðinu ef að aðstæður verða óhagstæðar.