Þjálfari 1 námskeið í alpagreinum

Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir skíðaþjálfara í alpagreinum 1.-3. apríl í Hlíðarfjalli, Akureyri. Námskeiðið er sérgreinahluti Þjálfari 1 réttinda. 
 

Dagskrá:
Föstudagur 1.apríl kl.18-21
Laugardagur 2.apríl kl.9-18
Sunnudagur 3.apríl kl.9-17
*Dagskrá getur tekið breytingum vegna veðurs og aðstæðna.

Leiðbeinendur verða Aron Andrew Rúnarsson og Sigurgeir Halldórsson.

Þátttökugjald er 10.000 kr. og greiðist við skráningu. Skráning er á netfangið ski@ski.is og er skráningarfrestur til og með 27.mars. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur.

Nánari upplýsingar veitir Jón Viðar Þorvaldsson á netfanginu ski@ski.is.