Þjálfari 1 námskeið í alpagreinum

Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir skíðaþjálfara í alpagreinum 25.-27. febrúar í Bláfjöllum. Námskeiðið er sérgreinahluti Þjálfari 1 réttinda. Einnig er verið að í öðru eins námskeið sem yrði haldið á Akureyri og verður auglýst fljótlega.
 

Dagskrá:
Föstudagur 25. feb kl.18-21
Laugardagur 26. feb kl.9-18
Sunnudagur 27. feb kl.9-17
*Dagskrá getur tekið breytingum vegna veðurs og aðstæðna.

Leiðbeinandi verður Snorri Páll Guðbjörnsson.

Þátttökugjald er 10.000 kr. og greiðist við skráningu. Skráning er á netfangið ski@ski.is og er skráningarfrestur til og með 22.febrúar. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur.

Nánari upplýsingar veitir Jón Viðar Þorvaldsson á netfanginu ski@ski.is.