Stór skíðavika framundan – 66 North Cup og Skíðamót Íslands

Líf og fjör verður í skíðaíþróttinni á Íslandi í vikunni þegar Skíðamót Íslands í alpagreinum og skíðagöngu fara fram, ásamt alþjóðlegu mótaröðinni 66 North Cup.

Keppni hefst með alþjóðlegum FIS mótum, 66 North Cup, í alpagreinum í Hlíðarfjalli við Akureyri í dagana 23.-25. mars, en í framhaldinu taka við Skíðamót Íslands í alpagreinum dagana 27.-29. mars á sama stað og Skíðamót Íslands í skíðagöngu á Ólafsfirði dagana 26.–29. mars.

Allt besta skíðafólk landsins mætir til keppni, þar á meðal Ólympíufararnir okkar 2026, og má búast við afar sterkri og skemmtilegri keppni alla vikuna.


66 North Cup - FIS mót í alpagreinum – Hlíðarfjalli (23.–25. mars)

Skíðafélag Akureyrar heldur alþjóðleg FIS mót þar sem keppt verður í:

  • 2 x svigi
  • 2 x stórsvigi   

í karla- og kvennaflokkum

Dagskrá:

Mánudagur 23. mars – Svig (2 mót)

  • 10:00 – Fyrri ferð
  • 11:45 – Seinni ferð
  • 14:00 – Fyrri ferð
  • 15:45 – Seinni ferð
  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála  

Þriðjudagur 24. mars – Stórsvig

  • 14:00  – Fyrri ferð

  • 15:45  – Seinni ferð

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála  

Miðvikudagur 25. mars - Stórsvig

  • 14:00 – Fyrri ferð

  • 15:45 – Seinni ferð

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála  

Skíðamót Íslands í alpagreinum – Hlíðarfjalli (27.–29. mars)

Keppt verður í:

  • Stórsvigi

  • Svigi

  • Samhliðasvigi (eingöngu fyrir íslenska keppendur)

í karla- og kvennaflokkum.

Dagskrá:

Föstudagur 27. mars – Stórsvig

  • 14:00 – Fyrri ferð

  • 15:45 – Seinni ferð

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

Laugardagur 28. mars – Svig

  • 10:00 – Fyrri ferð

  • 11:45 – Seinni ferð

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

Sunnudagur 29. mars - Samhliðasvig

  • 10:00 – Start

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

Skíðamót Íslands í skíðagöngu – Ólafsfirði (26.–29. mars)

Glæsileg dagskrá í skíðagöngu þar sem keppt er í sprettgöngu, einstaklingskeppni og liðaspretti.

Fimmtudagur 26. mars – Sprettganga (hefðbundið)
  • 15:00 – Fararstjórafundur

  • 17:00 – Forkeppni

  • 17:40 – Úrslit


Föstudagur 27. mars – Frjáls aðferð (einstaklingsstart)
  • 13:00 – 15–16 ára (5 km)

  • 13:30 – 13–14 ára (3,5 km)

  • 14:00 – Karlar 17+ (10 km)

  • 14:05 – Konur 17+ (10 km)


Laugardagur 28. mars – Hefðbundið (hópstart)
  • 11:00 – 15–16 ára (5 km)

  • 11:30 – 13–14 ára (3,5 km)

  • 12:00 – Karlar 17+ (15 km)

  • 12:05 – Konur 17+ (15 km)

  • 15:30 – Verðlaunahóf í Tjarnarborg


Sunnudagur 29. mars – Liðasprettur (frjáls aðferð)
  • 11:00 – 13–16 ára stúlkur

  • 11:20 – 13–16 ára drengir

  • 11:40 – Konur 17+

  • 12:10 – Karlar 17+


Við hvetjum alla til að fylgjast með

Framundan er ein stærsta skíðavika ársins á Íslandi og hvetjum við alla áhugasama til að fylgjast með keppni, annað hvort á staðnum eða í gegnum live timing á heimasíðu Alþjóðaskíðasambandsins FIS. 

Sjá 66 North Cup hér

Skíðamót Íslands - alpagreinar

Skíðamót Íslands - skíðaganga