Skíðasambandið auglýsir eftir þjálfurum í Hæfileikamótun alpagreina

Skíðasamband Íslands auglýsir eftir áhugasömum alpagreinaþjálfurum fyrir æfingaferð Hæfileikamótunar í alpagreinum til Stubai í Austurríki dagana 21. - 31. október 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjálfarar í verkefnum á vegum Hæfileikamótunar vinna samkvæmt skipulagi yfirþjálfara Hæfileikamótunar. Helstu verkefni þjálfara í æfingaferðum eru:

- Þjálfun í fjalli

- Stýra endurheimtaræfingum

- Vera iðkendum innan handar dags daglega

- Vera fyrirmynd fyrir iðkendur

- Aka iðkendum frá flugvelli og á hótel, og fram og til baka úr fjalli

 

Hæfniskilyrði

- Ökuréttindi

- Áhugi á þjálfun unglinga

- Áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu og þjálfunaraðferðir

- Vera starfandi þjálfari eða stefna á þjálfun

Starfandi þjálfarar eru sérstaklega hvattir til að sækja um og eru félögin hvött til að benda sínum þjálfurum á að sækja um. Ferðin er tilvalið tækifæri fyrir unga þjálfara til að sækja sér reynslu.

Umsóknir sendist á brynja@ski.is fyrir lok sunnudagsins 24. maí 2026.