Skíðamót Íslands í alpagreinum hófst í dag, föstudag, í Hlíðarfjalli við fjölbreyttar og krefjandi veðuraðstæður. Keppt var í svigi í Norðurbakka í frekar krefjandi aðstæðum.
Keppni fór fram í karla- og kvennaflokki sem og í U18 flokkum karla og kvenna.
Í kvennaflokki var það Sara Mjöll Jóhannsdóttir úr Ármanni sem átti besta tímann eftir fyrri ferð, Elín Elmarsdóttir Van Pelt úr Víkingi var önnur og Þórdís Helga Grétarsdóttir, einnig úr Víkingi, þriðja. Í seinni ferð sýndi Þórdís Helga frábæra frammistöðu, náði besta tímanum og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í svigi. Í öðru sæti varð Sonja Lil Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar og í þriðja sæti Eyrún Erla Gestsdóttir úr Víkingi. Sara Mjöll og Elín náðu ekki að ljúka seinni ferð.
Í karlaflokki var Matthías Kristinsson, Skíðafélagi Ólfasfjarðar, með besta tímann eftir fyrri ferð, Gauti Guðmundsson úr KR annar og Jón Erik Sigurðsson úr Fram þriðji. Gauti átti hins vegar frábæra seinni ferð, náði besta tímanum og varð Íslandsmeistari. Matthías Kristinsson varð annar og Jón Erik Sigurðsson þriðji.
Í U18 kvennaflokki sigraði Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir úr ÚÍA. Viktoría Björk Harðardóttir úr Breiðabliki varð í öðru sæti og Katrín María Jónsdóttir úr ÚÍA í því þriðja.
Í U18 karlaflokki stóð Óskar Valdimar Sveinsson úr Dalvík uppi sem sigurvegari. Kári Freyr Orrason úr Ármanni varð annar og Hrafnkell Gauti Brjánsson, einnig úr Ármanni, þriðji.
66°Norður veitti aukaverðlaun fyrir sigurvegara allra flokka og Fjallið gaf verðlaun fyrir 2. og 3. sæti í karla- og kvennaflokki, auk útdráttarverðlauna.
Skíðasamband Íslands óskar öllum Íslandsmeisturum og verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar mótshöldurum og sjálfboðaliðum fyrir vel unnin störf.
Á morgun, laugardag, fer fram keppni í stórsvigi í Hlíðarfjalli og eru allir hvattir til að mæta og fylgjast með þegar fremsta skíðafólk landsins etur kappi.
Sjá úrslit hér




