Skíðamaður og skíðakona ársins 2016

María Guðmundsdóttir - Skíðakona ársins
María Guðmundsdóttir - Skíðakona ársins

Skíðasamband Íslands hefur valið skíðamann og skíðakonu ársins 2016. Valið í ár var erfiðara en oft áður þar sem margir stóðu sig vel á árinu og ljóst að framtíðin er björt hjá Íslensku skíðafólki. Að lokum varð Snorri Einarsson fyrir valinu á skíðamanni ársins og María Guðmundsdóttir skíðakona ársins. Eru þau vel að titilinum komin og Skíðasamband Íslands óskar þeim til hamingju.

Skíðamaður ársins

Snorri Einarsson – Skíðagöngufélagið Ullur

Snorri Einarsson er fæddur árið 1986 og hefur keppt um árabil undir norsku ríkisfangi. Hann er búsettur í Noregi en faðir hans er Íslenskur. Í sumar skipti hann hinsvegar um ríkisfang og keppir í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd. Þó Snorri hafi aðeins keppt á sex mótum fyrir Íslands hönd eru yfirburðir hans slíkir í skíðagönu á Íslandi að ekki er hægt að horfa fram hjá honum í vali á skíðamanni ársins. Bestum árangri náði Snorri í 15km göngu með frjálsri aðferð í Olos í Finnlandi á alþjóðlegu FIS móti í nóvember 2016. Þar hafnaði hann í 2.sæti og fékk fyrir vikið 39,24 FIS stig. Á heimslista FIS er Snorri í 174.sæti á lista yfir lengri vegalendir. Snorri hefur nú þegar náð lágmörkum fyrir HM 2017 og ÓL 2018.

Skíðakona ársins

María Guðmundsdóttir – Skíðafélag Akureyrar

María stundar nám við háskólann í Anchorage í Bandaríkjunum og keppir fyrir skíðalið skólans í háskóladeildinni. María hóf árið af miklum krafi þegar hún gerði sér lítið fyrir og sigraði mót í Snowbird í Utah ríki þann 7.janúar. Fjórum dögum síðar gerði hún virkilega vel að ná þriðja sæti á sterku háskólmóti og fékk fyrir það 18,50 FIS stig, en þetta var í fyrsta skipti sem hún náði að skíða á undir 20 punktum. Með góðum árangri yfir veturinn tryggði María sér þátttökurétt á lokamóti háskólamótaraðarinnar en einungis 32 bestu stelpurnar frá öllum háskólum Bandaríkjanna fá þátttökurétt á mótinu. Þar stóð hún sig mjög vel og endaði í 12.sæti í stórsvigi og 18.sæti í svigi.

María keppti einnig í lokamóti Norður Ameríku bikarsins og gerði sér lítið fyrir og lenti í 4.sæti og fékk fyrir það 12,58 FIS stig sem eru hennar lægstu punktar á ferlinum til þessa. Þess má get að Norður Ameríku bikar (álfukeppni) er næst sterkasta mótaröð í heimi á eftir heimsbikar.

María kom svo heim og keppti á Skíðamóti Íslands og stóð sig með ágætum og varð í öðru sæti bæði í svigi og stórsvigi.

Árangur Maríu á árinu skilaði henni úr 209.sæti á heimslistanum í svigi og niður í 90.sæti með 15.54 FIS punkta. Er þetta í fyrsta skipti í 4 ár sem Ísland á skíðamann í topp 100 á heimslista eða síðan Björgvin Björgvinsson var á sínu síðasta ári.