Fjórir efnilegir skíðagöngumenn munu keppa fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramóti unglinga og U23 í skíðagöngu sem fram fer í Lillehammer, Noregi dagana 2.–8. mars.
Keppendurnir eru B-landsliðsmennirnir okkar Ástmar Helgi Kristinsson og Einar Árni Gíslason, ásamt þeim Grétari Smára Samúelssyni og Hjalta Böðvarssyni.
Einnig var Fróði Hymer úr Skíðagöngufélaginu Ulli valin til þátttöku á mótinu en hann varð því miður að afþakka sætið.
Einar Árni er úr Skíðafélag Akureyrar. Ástmar Helgi og Grétar Smári eru úr Skíðafélag Ísafjarðar og Hjalti Böðvarsson er úr Skíðagöngufélagið Ulli.
Allir hafa þeir sýnt góða frammistöðu í vetur og verður spennandi að fylgjast með þeim takast á við sterkustu unglinga- og U23-keppendur heims.
Með liðinu eru þjálfarar og smurningsmennirnir Ólafur H. Björnsson, Thorstein Hymer og Hlynur Kristinsson, og þeim til aðstoðar er Sveinbjörn Orri Heimisson.
Mánudagur 3. mars
Hjalti Böðvarsson og Grétar Smári Samúelsson keppa í junior flokki í sprettgöngu með frjálsri aðferð.
Þriðjudagur 4. mars
Ástmar Helgi Kristinsson og Einar Árni Gíslason keppa í U23 flokki í sprettgöngu.
Miðvikudagur 5. mars
Hjalti og Grétar keppa í 10 km frjálsri aðferð með einstaklingsræsingu (interval start).
Fimmtudagur 6. mars
Ástmar og Einar keppa í 10 km frjálsri aðferð með einstaklingsræsingu.
Föstudagur 7. mars
Hjalti og Grétar keppa í 20 km hefðbundinni aðferð með hópstarti.
Laugardagur 8. mars
Ástmar og Einar keppa í 20 km hefðbundinni aðferð með hópstarti.
Þetta eru afar öflugir og metnaðarfullir piltar sem hafa lagt hart að sér í undirbúningi fyrir mótið. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í Lillehammer og hvetjum við alla til að fylgjast með gangi mála hér og í FIS-appinu.
Skíðasambandið óskar strákunum góðs gengis á mótinu.
Áfram Ísland!