Skíðasamband Íslands óskar eftir umsóknum frá félögum til að halda æfingabúðir fyrir
hæfileikamótun í alpagreinum fyrir árganga 2008-2011.
Um er að ræða tvær helgar:
19.-21. september: Þrek, fræðsla og Ironman-þrekpróf
28.-30. nóvember: Skíði og þrek
Ætlast er til þess að þau félög sem taka verkefnin að sér sjái um gistingu og fæði við
hæfi, og útvegi starfsfólk til að halda utan um hópinn utan skipulagðar dagskrár. Einnig
er leitast til að sem flestir þjálfarar í verkefnum hæfileikamótunar komi úr heimahéraði.
19.-21. september: Þrek, fræðsla og Ironman-þrekpróf
Fyrir æfingabúðir í september þurfa félög að geta útvegað eftirfarandi:
● 400 metra hlaupabraut úr tartan, eða sambærilegu efni
● Langstökksgryfju
● Lyftingaraðstöðu
○ Upphífingastöng
○ Hnébeygjurekka
○ Bekkpressurekka
● Fyrirlestraraðstöð
Áhugasöm félög, vinsamlegast sendið póst á brynja@ski.is fyrir 10. júlí og tilgreinið hvora helgina þið sækið um.
