SKÍ Open - Golfmót

Skíðasamband Íslands stendur fyrir glæsilegu golfmóti þann 17. júlí að Jaðri hjá Golfklúbbi Akureyrar og verður leikfyrirkomulagið Texas Scramble.

Leikfyrirkomulagið er Texas Scramble og forgjöf liðs er reiknuð þannig að samanlögð leikforgjöf kylfinga er deilt með 5.

Mótið er styrktarmót fyrir landsliðsfólk Íslands á skíðum og mun ágóðinn af mótinu renna óskiptur til þeirra.

Verðlaun fyrir fimm efstu liðin:
1.sæti - 2x 100.000 kr. gjafabréf frá Icelandair
2.sæti - 2x 50.000 kr. gjafabréf frá 66°N
3.sæti - 2x 30.000 kr. gjafabréf frá 66°N
4.sæti - 2x Dolce Gusto Circolo kaffivél
5.sæti - 2x 15.000 kr. gjafabréf frá 66°N

Nándarverðlaun eru á öllum par 3 holum.
Lengsta teighögg á 6.holu.
Dregið verður úr skorkortum.

Skráning er inná www.golf.is.

Styrktaraðilar að mótinu eru Icelandair, 66°Norður, Vodafone, Ölgerðin og Landsbankinn.