SKÍ auglýsir eftir landsliðsþjálfara í alpagreinum

Landsliðsþjálfari í alpagreinum (English below)

Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum þjálfara til starfa með
alpagreinalandsliði Íslands tímabilið 2026–2027.
Viðkomandi mun starfa með núverandi þjálfarateymi og koma að þjálfun og undirbúningi
íslenskra keppenda sem keppa á FIS-mótum, Evrópubikarmótum og öðrum alþjóðlegum
mótum. Starfið hentar vel þjálfara sem vill starfa í afreksumhverfi og taka þátt í áframhaldandi
uppbyggingu íslensks afreksskíðafólks.

Helstu verkefni
•Dagleg þjálfun og umsjón með keppendum á æfinga- og keppnistímabili, með starfsstöð í Austurríki yfir vetrarmánuðina.
• Aðstoð við skipulagningu og framkvæmd landsliðsverkefna.
• Eftirfylgni með þróun og frammistöðu keppenda.
• Ferðalög með landsliðinu á æfingar og keppnir erlendis.

Hæfniskröfur
• Reynsla af alpagreinum og þjálfun keppenda á FIS-stigi.
• Þjálfaramenntun (Þjálfari 1 og þjálfari 2) er kostur.
• Góð samskipta- og skipulagshæfni.
• Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
• Góð enskukunnátta.
• Gilt ökuskírteini.

Ráðningartími
• 1. ágúst 2026 – 30. apríl 2027.
• Starfshlutfall og umfang verkefna tekur mið af landsliðsáætlun.
• Laun samkvæmt samkomulagi.

Umsóknir
Með umsókn skulu fylgja:
• Ferilskrá (CV)
• Stutt kynningarbréf
• Upplýsingar um tvo meðmælendur

Nánari upplýsingar og umsóknir
Brynja Þorsteinsdóttir
Afreksstjóri
Skíðasamband Íslands (SKÍ)
brynja@ski.is

Umsóknarfrestur er til 30. júní 2026.

Komdu í teymið og taktu þátt í að þróa framtíð íslenskra alpagreina.

________________________________________________________________________________________________________________________

National Team Coach – Alpine Skiing

The Icelandic Ski Association (SKÍ) is seeking a motivated and enthusiastic coach to join its
Alpine National Team coaching staff for the 2026–2027 season.
The successful candidate will work alongside the current coaching team and support Icelandic
athletes competing at FIS, European Cup and international level. This position is an excellent
opportunity for an ambitious coach looking to gain experience within a national team
environment.

Main Responsibilities
• Provide daily coaching and oversight for national team athletes, with the team based in Austria during the winter season. 
• Assist with planning and delivery of national team activities.
• Support athlete development and performance monitoring.
• Travel with the team to training camps and competitions in Europe.

Qualifications
• Experience in alpine ski racing and coaching at FIS level or higher.
• Strong communication and organizational skills.
• Ability to work independently and as part of a team.
• Good command of English.
• Valid driver's license.

Contract
• Period: 1 August 2026 – 30 April 2027
• Flexible workload based on the national team calendar.
• Salary and terms by agreement.

Applications
Please send:
• CV
• Brief cover letter
• Two references

Applications and inquiries:
Brynja Þorsteinsdóttir
Sports Director
Icelandic Ski Association (SKÍ)
brynja@ski.is
Application deadline: June 30th, 2026

Join us and help develop the future of Icelandic alpine skiing.