Setningarhátíð EYOWF í kvöld

Hópurinn við komu til Sarajevó í gær
Hópurinn við komu til Sarajevó í gær

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar er nú haldin í fjórtánda sinn, að þessu sinni í Sarajevó og Austur-Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu. Setningarhátíð leikanna fer fram í kvöld og lokahátíð leikanna fer fram kvöldið 16. febrúar.

Keppnisgreinar á leikunum eru alpagreinar, skíðaskotfimi, skíðaganga, íshokkí, skautahlaup, listskautar, krulla og snjóbrettagreinar.

Íslendingar eiga 12 keppendur á hátíðinni, auk þjálfara og flokksstjóra, dómara, sjúkraþjálfara og aðalfararstjóra. Eftirtaldir munu taka þátt í leikunum fyrir Íslands hönd.

Alpagreinar
Andri Gunnar Axelsson Keppandi 
Aron Máni Sverrisson Keppandi
Guðfinna Eir Þorleifsdóttir Keppandi
Helga Björk Árnadóttir Þjálfari
Magnús Finnsson Flokksstjóri og þjálfari
Aðalbjörg Lilly Hauksdóttir, keppandi, þurfti að draga sig úr hópnum á síðustu stundu vegna meiðsla.

Snjóbretti
Baldur Vilhelmsson Keppandi
Birkir Þór Arason Keppandi
Bjarki Arnarsson Keppandi
Kolbeinn Þór Finnsson Keppandi
Einar Rafn Stefánsson Flokksstjóri og þjálfari

Listskautar
Marta María Jóhannsdóttir Keppandi
Darja Zajcenko Flokksstjóri og þjálfari
María Fortescue Dómari

Skíðaganga
Egill Bjarni Gíslason Keppandi
Fanney Rún Stefánsdóttir Keppandi
Jakob Daníelsson Keppandi
Kolfinna Íris Rúnarsdóttir Keppandi
Vadim Gusev Flokksstjóri og þjálfari
Tormod Vatten Þjálfari

Í fararstjórn á vegum ÍSÍ verða eftirtaldir:
Örvar Ólafsson fararstjóri
Mundína Ásdís Kristinsdóttir sjúkraþjálfari

Hægt verður að fylgjast með íslenskum þátttakendum á hátíðinni í gegnum miðla ÍSÍ:
Vefsíða ÍSÍ
Facebook ÍSÍ
Instagram ÍSÍ
SnapChat ÍSÍ (á meðan á hátíðinni stendur): isiiceland

Vefsíða leikanna
Facebook síða leikanna

#eyof2019 #sarajevo #eastsarajevo