Seinni keppnisdagur Scandinavian Cup í Hlíðarfjalli

Frá keppni dagsins
Frá keppni dagsins

SCANDINAVIAN CUP skíðagöngumót í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag 20. mars 2022

Annar og seinni keppnisdagur á alþjóðlega skíðamótinu Scandinavian Cup fór fram í dag og var keppt í 15 km skíðagöngu með frjálsri aðferð í flokkum karla og kvenna.

Margt af öflugasta skíðagöngufólki Norðurlanda var mætt til keppni í dag og gengu konur og karlar 15 km með frjálsri aðferð (skauta aðferð).  Ræst var með hópræsingu í báðum flokkum.

Aðstæður voru nokkuð góðar í dag eftir að vindur datt niður og sólin fór að skína.  Hitastig var um frostmark og náðu brautir að verða harðar og þéttar og keppnin því hröð og jöfn. 

Í kvennaflokki var hörð barátta á milli Marte Skaanes og Karoline Simpson-Larsen en þær koma báðar frá Noregi.  Karoline leiddi alla þrjá hringina og þær stöllur hristu allar aðrar af sér.  Í síðustu brekkunni þegar komið var inn á marksvæðið var það þó Marte sem átti næga orku eftir til að vinna Karoline nokkuð örugglega þegar komið var yfir marklínuna.

Í karlaflokki var gríðarlega hörð barátta og var stór hópur sem fylgdist að alla hringina þrjá og réðust úrslit ekki fyrr en komið var á marksvæðið og aðeins um 500 metrar eftir.  Sigurvegari dagsins var Jan Thomas Jensson NOR, annar var Magne Haga NOR og í þriðja sæti Ivar Tildheim Andersen NOR. 

Norðmenn voru gríðarlega öflugir á mótinu um helgina. Sem dæmi þá voru þeir í 11 efstu sætunum í karlaflokki, en í kvennaflokki voru úrslitin dreifðari á milli þjóðða.

Kristrún Guðnadóttir í Skíðafélaginu Ulli var fremst Íslenskra kvenna í 21. sæti, en í karlaflokki var það hinn öflugi Snorri Einarsson sem var í 22. sæti.

Öll úrslit má sjá hér.

Mótið í Hlíðarfjalli var loka mót í Scandinavian Cup mótaröðinni og voru veitt verðlaun fyrir samanlagðan árangur vetrarins í dagslok.  Það var hin gríðarlega öfluga Marte Skaanes Noregi  sem bar sigur úr samanlagðri keppninni og öðlast með því þátttökurétt í heimasbikar mótaröðinni á næsta ári. Önnur í mótaröðinni var Silja Oeyre Slind NOR og í þriðja sæti var Karoline Simpson-Larsen einnig frá Noregi.

Í samanlögðum árangri Scandinavian Cup mótaraðarinnar í karlaflokki var það Mattis Stenshagen NOR sem bar sigur úr bítum nokkuð örugglega.  Annar var Magne Haga NOR og Ola Jeorgen Bruvoll NOR var þriðji.  Mattis Stenshagen fær að launum að taka þátt í heimsbikarmótum fyrir hönd Noregs á næsta keppnisári.

Þetta er í fyrsta skipti sem keppni af þessari stærðargráðu er haldin á Íslandi og létu keppendur vel af aðstæðum og mótahaldi.  Auk áhorfenda í Hlíðarfjalli fylgdust um 2000 manns með keppninni í gegnum streymi þar sem keppninni var gerð góð skil.

 

Um Scandinavian Cup:

Scandinavian Cup er mótaröð á vegum Alþjóða Skíðasambandsins (FIS) sem haldið er á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum á hverju ári.  Í ár hafa farið fram mót í Beitostölen í Noregi, Falun í Svíþjóð, Otepää í Eistlandi og mun síðasta mótið fara fram á Akureyri.  Mótið er gríðarlega sterkt og hingað mæta skíðagöngumenn sem m.a. hafa verið að taka þátt í heimsbikarmótum í ár.  Þetta er í fyrsta skipti sem Scandinavian Cup er haldið á Íslandi og má því sannarlega segja að þetta sé allra sterkasta skíðagöngumót sem haldið hefur verið hér á landi.

Til leiks eru skráðir tæplega 70 skíðamenn og konur frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Þýskalandi, Litháen, auk þess sem íslenska landsliðið tekur allt þátt í mótinu. Því til viðbótar má búast við fjölmennu liði þjálfara og aðstoðarfólks. Undirbúningur hefur staðið yfir í heilt ár til að kappkosta að allt gangi sem best þegar að mótahaldi kemur – en m.a. þarf að huga að gistingu, mat, ferðalögum, áburðaraðstöðu, brautum, mótsskrifstofum, o.fl. sem ekki flokkast beint til keppnishaldins.

 

Nánari tímasetningar, dagskrá mótsins, úrslit, hlekk á LIVE streymi og live tímatöku má sjá á heimasíðu mótsins https://www.scancupakureyri.com/

 

Mótsstjóri er Ólafur H. Björnsson - olihbjorns@gmail.com

Heimasíða mótsins á Akureyri https://www.scancupakureyri.com/

Facebook síða mótsins https://www.facebook.com/scancupakureyri

Instagram @scancupakureyri

Heimasíða Scandinavian Cup https://www.skiforbundet.no/sc/

 

Fyrir frekari upplýsingar um mótið vinsamlegast hafið samband;

Gísli Einar Árnason gsm: 862 8607 gislieinar@gmail.com