Matthías nær sögulegum árangri á heimsmeistaramóti unglinga

Matthías Kristinsson A - landsliðssmaður skrifaði nýjan kafla í skíðasögu Íslands í dag þegar hann endaði í 11. sæti á heimsmeistaramóti unglinga í svigi. Þetta er besti árangur Íslendings á heimsmeistaramóti unglinga frá upphafi í alpagreinum. Mótið fór fram í Narvik í Noregi við heldur krefjandi aðstæður. Matthías skilaði tveimur glæsilegum ferðum í keppni dagsins, en eftir fyrri ferðina var Matthías í 14. sæti + 0,84 sek á eftir Bretanum Luca Carrick Smith. Seinni ferðin bauð upp á heldur meiri dramatík en Matthías keyrði sig upp um þrjú sæti og endaði í 11. sæti, 1,34 sek á eftir Giuliano Fux frá Sviss. 

Að sögn Matthíasar var þetta erfiður dagur með mismunandi skyggni og aðstæðum sem hentuðu vel þeim sem byrjuðu snemma. „Ekki minn besti skíðadagur en þetta er ekki slæmur árangur, það er gaman að skrifa nýjan kafla í skíðasögunni á Íslandi.“ 

Bjarni Þór Hauksson A - landsliðsmaður náði einnig flottum árangri í móti dagsins. Bjarni endaði 31. eftir fyrri ferðina, 0,03 sek frá viðsnúning. Bjarni keyrði sig upp um þrjú sæti í seinni ferðinni og endaði hann að lokum í 27. sæti. Bjarni og Matthías hafa átt gott tímabil í vetur og það verður gaman að fylgjast með þeim áfram. 

Arnór Alex Arnórsson og Torfi Jóhann Sveinsson náðu ekki að ljúka keppni í dag. 

Úrslit mótsins má finna hér:

Skíðasambandið óskar Matthías og Bjarna til hamingju með árangurinn!