Linda Rós og Snorri Íslandsmeistarar í sprettgöngu

Snorri Einarsson og Linda Rós Hannesdóttir
Snorri Einarsson og Linda Rós Hannesdóttir

Skíðamót Íslands í skíðagöngu hófst í dag í Hlíðarfjalli við Akureyri með keppni í sprettgöngu. Keppni hófst kl.18:00 með undanrásum þar sem allir keppendur fóru í tímatöku. Hjá körlum fóru átta efstu í undanúrslit og fjórir bestu úr undanúrslitum í úrslit. Hjá konum fóru fjórar bestu úr undanrásum í úrslit.

Í úrslitum hjá konum sigraði Linda Rós Hannesdóttir frá Ísafirði eftir frábæran sprett í úrslitum, var þetta hennar fyrst Íslandsmeistaratitill í fullorðinsflokki. Hjö körlunum stóð Snorri Einarsson frá Ulli uppi sem sigurvegari eftir ótrúlegan endasprett við Dag Benediktsson sem endaði með því að það þurfti myndbandsdómgæslu en einungis munaði nokkrum sentimetrum á þeim.

Konur
1. Linda Rós Hannesdóttir - SFÍ
2. Gígja Björnsdóttir - SKA
3. Veronika Lagun - SKA

Karlar
1. Snorri Einarsson - Ullur
2. Dagur Benediktsson - SFÍ
3. Albert Jónsson - SFÍ

Heildarúrslit má sjá hér.

Á morgun fer fer fram 10/15 km með frjálsri aðferð og hefst keppni kl.17:00.