Landslið SKÍ í alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og skíðafimi hafa verið á fullu við æfingar í sumar. Undirbúningstímabilið er nú langt komið og hafa liðin nýtt sumarið vel, bæði hér heima og erlendis. Fram undan eru síðan fleiri æfingabúðir áður en keppnistímabilið hefst.
Skíðagöngulandsliðið var við æfingar í Torsby í Svíþjóð dagana 29. júní til 5. júlí, en það voru aðrar sameiginlegu æfingabúðir liðsins á undirbúningstímabilinu.
Aðstæður í Torsby voru nýttar vel og æfði liðið meðal annars á hjólaskíðum, hljóp og fór á skíði í skíðagöngugöngunum sem þar eru. Æfingabúðirnar tókust mjög vel og náði hópurinn góðum og fjölbreyttum æfingum yfir vikuna.
Þriðju æfingabúðir liðsins fóru síðan fram í Reykjavík nú í ágúst. Þar var æft að jafnaði tvisvar á dag, alls um 23 klukkustundir yfir vikuna. Æfingaálagið var því mikið og æfingarnar bæði fjölbreyttar og krefjandi.
Í lok vikunnar tók hópurinn þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, þar sem keppendur hlupu ýmist 10 km eða hálfmaraþon.
Dagur, sem sigraði í hálfmaraþoninu í fyrra, hafnaði í 5. sæti í ár og varð þriðji Íslendingurinn í mark. Hann bætti jafnframt tíma sinn frá því í fyrra. Einar Árni átti einnig mjög gott hlaup, hafnaði í 8. sæti og bætti sinn tíma frá síðasta ári.
Árangur þeirra Dags og Einars er sérstaklega góður í ljósi þess að hlaupið kom í lok krefjandi æfingaviku og á miðju undirbúningstímabili, þegar áherslan er fyrst og fremst á uppbyggingu fyrir komandi vetur.
Æfingabúðunum lauk síðan á sunnudeginum með tveggja klukkustunda stakaæfingu á hjólaskíðum, þar sem eingöngu er stakað og því reynir mikið á efri hluta líkamans.
Næstu æfingabúðir skíðagöngulandsliðsins verða í Alta í Noregi dagana 20.–28. september.
Alpagreinalandsliðið hefur einnig verið á fullu í undirbúningi sínum. Liðið var á dögunum í æfingabúðum í SNØ í Ósló, þar sem æft var á skíðum innandyra tvisvar á dag í sex daga. Samhliða skíðaæfingunum var lögð áhersla á endurheimt, liðleika og léttar styrktaræfingar.
Um nýliðna helgi kom liðið síðan saman í Reykjavík þar sem meðal annars var farið í Ironman Test á laugardeginum. Ironman er umfangsmikið þrek- og styrktarpróf sem notað er til að meta líkamlega stöðu alpagreinakeppenda.
Árangur í Ironman Test er hluti af þeim kröfum sem gerðar eru til íþróttafólks í alpagreinalandsliðinu og stóðust öll í landsliðinu þær kröfur sem gerðar voru að þessu sinni. Það er ánægjuleg niðurstaða og sýnir að hópurinn er vel á veg kominn í undirbúningi sínum fyrir komandi keppnistímabil.
Næsta stóra verkefni alpagreinalandsliðsins er fyrirhuguð ferð á Passo Stelvio á Ítalíu í byrjun september, að því gefnu að snjó- og veðuraðstæður leyfi. Stefnt er að því að æfingatímabilið þar verði samtals um 20 dagar, skipt niður í þrjár æfingalotur.
Fræðsla er mikilvægur hluti af landsliðsstarfi SKÍ og samhliða líkamlegum æfingum er lögð áhersla á að íþróttafólkið fái fræðslu sem nýtist því bæði í íþróttinni og utan hennar.
Alpagreina- og snjóbrettalandsliðin fengu fyrirlestur frá Thelmu Rún Rúnarsdóttur, næringarfræðingi hjá Afreksmiðstöð Íslands, þar sem farið var yfir næringu í tengslum við æfingar, endurheimt, keppni og þær auknu kröfur sem fylgja afreksíþróttum.
Dr. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, var einnig með fyrirlestur fyrir skíðagöngu- og alpagreinalandsliðin. Viðar hefur um árabil rannsakað afreksíþróttir og hvað liggur að baki árangri íþróttafólks og liða. Í fyrirlestrinum var meðal annars fjallað um liðsheild, menningu innan afrekshópa og þá félagslegu þætti sem geta haft áhrif á árangur.
Að dagskrá lokinni kom hópurinn saman í sameiginlegan kvöldverð á Spírunni.
Á sunnudeginum var síðan lögð áhersla á endurheimt eftir mikið álag í Ironman testinu hjá alpagreinalandsliðinu. Liðið fór í létta recovery-æfingu og að henni lokinni var hópnum boðið í Leirböðin í Hveradölum, þar sem hægt var að slaka vel á eftir átök helgarinnar.
Æfingabúðunum hjá skíðagöngulandsliðinu lauk síðan á sunnudeginum með tveggja klukkustunda stakaæfingu á hjólaskíðum, þar sem eingöngu er stakað og því reynir mikið á efri hluta líkamans.
Snjóbretta- og skíðafimilandsliðið heldur nú til Kläppen í Svíþjóð, þar sem fram undan eru æfingabúðir með mikilli áherslu á stökk og tæknilega færni.
Þar mun liðið meðal annars æfa stökk á svokölluðum loftpúða (airbag). Slíkar aðstæður gera íþróttafólkinu kleift að vinna markvisst að nýjum stökkum og tæknilegum atriðum við öruggari aðstæður áður en þau eru yfirfærð á snjó.
Þrek- og styrktarpróf verða einnig hluti af æfingabúðunum.
Hluti hópsins hefur þegar dvalið töluvert í Kläppen í sumar við æfingar. Anna Kamilla hefur meðal annars verið staðsett þar í allt sumar og æft markvisst við þær góðu aðstæður sem svæðið býður upp á.
Mikil og góð vinna hefur farið fram hjá landsliðum SKÍ í sumar og næstu vikur verða áfram mikilvægar í undirbúningi liðanna.
Æfingabúðir, styrktar- og þrekþjálfun, fræðsla og markviss vinna með liðsheildina eru allt mikilvægir þættir í því að undirbúa íþróttafólkið sem best fyrir verkefni vetrarins.
Það verður því spennandi að fylgjast með landsliðsfólki okkar áfram í gegnum síðustu vikur undirbúningstímabilsins og inn í komandi keppnistímabil.















