Skíðasamband Íslands hefur valið landslið Íslands í snjóbrettum og skíðafimi fyrir keppnistímabilið 2026–2027 í samræmi við áður útgefnar reglur sambandsins.
Í A-landsliði snjóbretta eru þær Anna Kamilla Hlynsdóttir og Vildís Edwinsdóttir, báðar úr Brettafélagi Hafnarfjarðar.
Í B-landsliði snjóbretta eru Jökull Bergmann Kristjánsson og Alís Helga Daðadóttir, bæði úr Skíðafélagi Akureyrar. Þau eru bæði ný inn í landsliðið og verður spennandi að fylgjast með framgangi þeirra á komandi tímabili.
Í B-landsliði skíðafimi er Jónar Sebastian Giljan Grímsson, sem einnig keppir fyrir Skíðafélag Akureyrar.
Fyrsta sameiginlega æfing landsliðshópsins fer fram í ágúst næstkomandi en undirbúningur fyrir tímabilið er nú þegar hafinn.
Fram undan er skemmtilegt og krefjandi tímabil og verður gaman að fylgjast með þessum öfluga hópi keppenda takast á við komandi verkefni.
Skíðasamband Íslands óskar öllum keppendum innilega til hamingju með landsliðssætin.

