Landslið Íslands í snjóbrettum og skíðafimi 2025-2026

Jónar Sebastían, Arnór Dagur, Vildís og Anna Kamilla
Jónar Sebastían, Arnór Dagur, Vildís og Anna Kamilla

Snjóbrettanefnd SKÍ hefur valið í landslið Íslands í snjóbrettum og skíðafimi fyrir tímabilið 2025-2026 eftir áður útgefnum reglum. 

A-landsliðið í snjóbrettum skipa þau Anna Kamilla Hlynsdóttir, Vildís Edwinsdóttir og Arnór Dagur Þóroddson og eru þau öll úr Brettafélagi Hafnarfjarðar.

Í A-landsliðið í Skíðafimi er Jónar Sebastían Giljan Grímsson sem keppir fyrir KR.

Landsliðsþjálfari er Justin de Graaf frá Hollandi. 

Landsliðið hefur nú þegar farið á tvær landsliðsæfingar með Justin, aðra í Banger Park í Austurríki og nú nýverið lauk æfingu í Kläppen í Svíþjóð. Á báðum þessum æfingum var æft á pöllum með lofdýnu og einnig voru þrek og styrkaræfingar auk æfinga á trampolíni.

Anna Kamilla mun vera meira og minna í Klappen í allt sumar og æfa þar með Justin en næsti landsliðskampur er svo á dagskrá í júlí.

Jónar Sebastían Giljan Grímsson landsliðsmaður í skíðafimi mun stunda nám, æfingar og keppnir með Norges Toppidrettgymnas í Lillehammer næsta vetur en mun einnig mæta á einhverjar æfingar með snjóbrettalandslinu.

Það eru ekki nema tæpir 8 mánuður í Vetrarólympíuleikana á Ítalíu þar sem stefnt er á að allavega einn keppandi frá Íslandi í snjóbrettum vinni sér inn sæti.

Skíðasambandið vill óska landsliðsfólkinu til hamingju með landsliðssætið, það verður spennandi að fylgjast með liðinu á komandi tímabili.