Landslið Íslands í alpgreinum 2025-2026

Keppendur á HM í Saalbach 2025, Jón Erik, Tobias Hófí Dóra, Gauti og Sturla Snær
Keppendur á HM í Saalbach 2025, Jón Erik, Tobias Hófí Dóra, Gauti og Sturla Snær

Alpagreinanefnd SKÍ hefur valið landslið fyrir tímabilið 2025-2026 eftir áður útgefnum valreglum.

A-landsliðið skipa þau Bjarni Þór Hauksson úr Víkingi, Gauti Guðmundsson úr KR, Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir úr Ármanni, Jón Erik Sigurðsson úr Fram og Matthías Kristinsson úr Skíðafélagi Ólafsfjarðar.

B-landsliðið skipa þeir Tobias Hansen úr SKA og Pétur Reidar Pétursson úr KR.

Þess má geta að Elín Elmarsdóttir Van Pelt úr Víkingi og Sturla Snær Snorrason úr Ármanni afþökkuðu sæti í B-landsliðinu en munu halda áfram æfingum og keppni með sínum liðum erlendis.

Fyrsta þrektestið (ironman test) hjá landsliðinu á nýju tímabili var 21. júní sem þau endurtaka svo aftur 23. ágúst þegar landsliðið er með samæfingarhelgi.

Fyrsta sameiginlega landsliðsæfingin á skíðum verður á Juvass í Noregi í byrjun ágúst. Nú eru ekki nema tæpir 8 mánuðir í Vetrarólympíuleikana á Ítalíu en Skíðasambandið stefnir á að fara allavega með tvo keppendur í alpagreinum á leikana en vonandi ná fleiri að vinna sér inn sæti. 

Skíðasambandið vill óska landsliðsfólkinu til hamingju með landsliðssætið, það verður spennandi að fylgjast með liðinu á komandi tímabili.