Landslið í skíðagöngu valið fyrir tímabilið 2026–2027

Skíðasamband Íslands hefur nú valið landslið Íslands í skíðagöngu fyrir keppnistímabilið 2026–2027 í samræmi við áður útgefnar reglur sambandsins.

Í A-landsliðinu eru tveir keppendur. Dagur Benediktsson úr Skíðafélagi Ísafjarðar heldur sæti sínu frá fyrra tímabili og nýr inn í A-liðið er Einar Árni Gíslason úr Skíðafélagi Akureyrar, sem var í B-landsliðinu í fyrra.

Í B-landsliðinu eru þrír keppendur. Ástmar Helgi Kristinsson úr Skíðafélagi Ísafjarðar heldur sæti sínu í liðinu frá fyrra ári. Grétar Smári Samúelsson úr Skíðafélagi Ísafjarðar er nýr inn í landsliðið, en Fróði Hymer úr Skíðagöngufélaginu Ulli kemur aftur inn í liðið en hann var síðast í B-landsliði fyrir tveimur árum og gaf ekki kost á sér á síðasta tímabili.

Eins og undanfarin ár verður Vegard Karlstrøm frá Noregi landsliðsþjálfari.

Fyrsta landsliðsæfing tímabilsins fer fram á Akureyri dagana 8.–14. júní næstkomandi, þar sem hópurinn mun hefja undirbúning fyrir komandi keppnistímabil.

Skíðasamband Íslands óskar keppendunum til hamingju með landsliðssætin og hlakkar til að fylgjast með þeim takast á við komandi verkefni á tímabilinu.