Sprettganga Skíðamóts Íslands fór fram í frábærum aðstæðum á Ólafsfirði í dag en þetta var jafnframt loka dagur mótsins.Keppt var í fullorðinsflokki 17 ára og eldri, bæði í kvenna- og karlaflokki, í 15–16 ára flokki stúlkna og drengja og í 13–14 ára flokki stúlkna og drengja.
Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson stóðu bæði uppi sem sigurvegarar í fullorðinsflokki og tryggðu sér þar með sinn þriðja Íslandsmeistaratitil á mótinu 2026.
Í lok dags fór einnig fram skemmtileg liðakeppni þar sem lið kepptu saman í hraðri og spennandi boðgöngu. Dagur og Grétar Smári Samúelsson úr Skíðafélagi Ísafjarðar unnu liðakeppni karla og tryggðu sínu liði Íslandsmeistaratitilinn. Í kvennaflokki tryggðu Kristrún og María Kristín Ólafsdóttir úr Skíðagöngufélaginu Ulli einnig sínu liði Íslandsmeistaratitilinn, sem að lokum tryggði bæði Degi og Kristrúnu þeirra fjórða Íslandsmeistaratitil á mótinu, virkilega glæsilegt afrek hjá Ólympíuförunum okkar.
Skíðasamband Íslands óskar öllum Íslandsmeisturum og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar jafnframt Skíðafélagi Ólafsfjarðar sem og öllum sjálfboðaliðum fyrir frábært starf og ómetanlega vinnu við mótshaldið.
Úrslit sprettganga
Fullorðinsflokkur – Karlar 17 ára og eldri
- Dagur Benediktsson – SFÍ – 00:02:36.81
- Snorri Einarsson – SFÍ – 00:02:36.47
- Ævar Freyr Valbjörnsson – SKA – 00:02:50.09
Fullorðinsflokkur – Konur 17 ára og eldri
- Kristrún Guðnadóttir – Ullur – 00:03:04.31
- María Kristín Ólafsdóttir – Ullur – 00:03:28.38
- Vala Kristín Georgsdóttir – Ullur – 00:03:59.86
15–16 ára flokkur
Drengir
- Jökull Ingimundur Hlynsson – SFS – 00:02:46.89
- Daði Pétur Wendel – Ullur – 00:03:07.63
- Matthías Karl Ólafsson – Ullur – 00:03:20.94
Stúlkur
- María Sif Hlynsdóttir – SFÍ – 00:03:16.61
- Birna Dröfn Vignisdóttir – SFS – 00:03:23.08
- Elma Dögg Sigurðardóttir – SFS – 00:03:38.62
13–14 ára flokkur
Drengir
- Friðgeir Logi Halldórsson – SFS – 00:03:11.35
- Ólafur Sveinn Böðvarsson – Ullur – 00:03:19.59
- Ásbjörn Logi Halldórsson – Utan félags – 00:03:31.40
Stúlkur
- Viktoría Rós Guseva – SKA – 00:03:21.07
- Ásdís Helga Ingólfsdóttir – SFS – 00:03:49.43
- Hekla Malín Ellertsdóttir – SKA – 00:03:51.62