Kristrún og Dagur óstöðvandi á Íslandsmeistaramótinu í skíðagöngu. Veðuraðstæður á Ólafsfirði voru gjörólíkar gærdeginum en keppt var í 10 km göngu með frjálsri aðferð í dag, það blés hressilega og mikil snjóblinda gerði keppendum erfitt fyrir.
Kristrún Guðnadóttir í Ulli sigraði í kvennaflokki, í öðru sæti var María Kristín Ólafsdóttir Ulli og í þriðja sæti var Þórey Dögg Ragnarsdóttir Skíðafélagi Strandamanna.
„Ég hef örugglega sjaldan skíðað í svona krefjandi aðstæðum. Það var mjög mikil snjóblinda… Þetta er örugglega eina landið í heiminum þar sem eru haldin mót í þessum aðstæðum. Ólafsfirðingar standa sig eins og hetjur… Þetta var bara stemning.“ er haft eftir Kristrúnu í viðtali við Rúv í dag.
Dagur Benediktsson frá Ísafirði sýndi einnig yfirburði sína í karlaflokki. Dagur varð Íslandsmeistari, í öðru sæti var Grétar Smári Samúelsson frá Ísafirði og í þriðja sæti varð Einar Árni Gíslason frá Skíðafélagi Akureyrar.
„Það er bara að stilla hausinn rétt og berjast alla leið,“ sagði Dagur að lokinni keppni. Þetta er svona það sem maður ólst upp við að gera. Þetta er svona okkar heimaveður í rauninni. Að keppa í svona vindi og snjó.“ er haft eftir Degi í viðtali við Rúv í dag.
Einnig var keppt í flokkum 13-14 ára drengja og stúlkna, 3,5 km frjáls aðferð. Íslandsmeistarar urðu Friðgeir Logi Halldórsson Skíðaélagi Strandamanna og Viktoría Rós Guseva Skíðafélag Akureyrar og í flokki 15-16 ára, 5 km frjáls aðferð. Varð Jökull Ingimundur Hlynsson Skíðafélagi Strandamman og Birna Dröfn Vignisdóttir Skíðafélagi Strandamanna.
Á morgun verður keppt í sprettgöngu, keppni hefst klukkan 10:00.








