Skíðasamband Íslands hefur valið keppendur sem taka munu þátt í Heimsmeistaramóti unglinga í alpagreinum sem fram fer í Narvík í Noregi dagana 5.–15. mars.
Landsliðsmennirnir Bjarni Þór og Matthías eru meðal keppenda í ár og eins Ólympíufararnir Elín Van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir.
Eftirtaldir keppendur skipa íslenska hópinn á mótinu:
Karlar
Bjarni Þór Hauksson – Víkingur
Matthías Kristinsson – Skíðafélag Ólafsfjarðar
Arnór Alex Arnórsson – KR
Torfi Jóhann Sveinsson – Dalvík
Konur
Elín Van Pelt – Víkingur
Sonja Lí Kristinsdóttir – Skíðafélag Akureyrar
Þórdís Helga Grétarsdóttir – Víkingur
Sara Mjöll Jóhannsdóttir – Ármann
Andri Kári Unnarsson úr Ármanni og Eyrún Erla Gestsdóttir úr Víkingi hafa afþakkað sæti í hópnum að þessu sinni.
Þjálfarar í ferðinni verða Haukur Þór Bjarnason, landsliðsþjálfari, Kristinn Björnsson, þjálfari í NTG Geilo, og Arnór Gunnarsson.
Hópurinn heldur til Narvíkur 9. mars.
Skíðasamband Íslands óskar hópnum til hamingju með valið og góðs gengis á mótinu.
Hægt er að sjá dagskrá hér og fylgjast með beinum úrslitum mótsins hér