Katla Björg í 2. sæti í Rogla í Slóveníu

Katla Björg Dagbjartsdóttir,  landsliðskona í alpagreinum,  var að ljúka keppni í Rogla í Slóveníu í dag þar sem hún endaði í 2. sæti með 44.82 FIS stig. Þetta er hennar besti árangur í svigi til þessa en hún hefur verið að bæta stöðu sína á heimslista FIS á hverju móti sem hún hefur tekið þátt í að undanförnu bæði í svigi og stórsvigi. Katla Björg hefur verið að æfa í vetur með Lowlanders Skiracing þar sem fleiri liðsfélagar hennar hafa einnig náð góðum árangri í vetur.

 

Heildarúrslit má sjá hér

 

Á morgun keppir hún svo aftur í svigi í Rogla