Jónar Sebastian og Jökull keppa á heimsmeistaramóti unglinga í Calgary

Jónar Sebastian Giljan Grímsson og Jökull Bergmann taka þátt í heimsmeistaramóti unglinga í skíðafimi og snjóbrettum sem fram fer í Calgary, Kanada dagana 24. febrúar til 7. mars.

Mótið er eitt það sterkasta á alþjóðlegu mótadagatali unglinga þar sem fremstu keppendur heims á þessum aldri etja kappi. Jónar Sebastian keppir í skíðafimi og Jökull í snjóbretti, en báðir taka þátt í slopestyle, big air og rail.

Jónar Sebastian sem keppir fyrir Skíðadélag Akureyrrar (SKA) er í landsliði Íslands í skíðafimi og stundar nám við skíðamenntaskólann NTG í Lillehammer í Noregi, þar sem hann sameinar nám og markvissa skíðaþjálfun.

Jökull sem einnig keppir fyrir SKA stundar nám og æfingar við snjóbrettaskóla í Svíþjóð og hefur á tímabilinu æft mikið undir leiðsögn Justin De Graaf, þjálfara Önnu Kamillu, landsliðskonu Íslands í snjóbrettum.

Fararstjóri í ferðinni er Grímur Rúnarsson og þjálfari er Jökull Elí Borg. Hópurinn er nú þegar farinn erlendis og verður mótið sett með formlegum hætti í kvöld.

Þátttaka á heimsmeistaramóti unglinga er afar dýrmæt reynsla og mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og þróun þessara ungu og efnilegu keppenda.

Skíðasambandið óskar strákunum góðs gengis á mótinu.