Þátttöku íslensku keppendanna á Heimsmeistaramóti unglinga og U23 í norrænum greinum lauk í dag í Lillehammer í Noregi.
Í dag kepptu keppendur í U23 flokki í 10 km skíðagöngu með hefðbundinni aðferð. Einar Árni Gíslason átti frábæra göngu og endaði í 49. sæti. Ástmar Helgi Kristinsson átti einnig fína göngu og skilaði einni af sínum betri göngum í vetur.
Í gær kepptu yngri strákarnir í sömu vegalengd. Grétar Smári Samúelsson átti þar góða göngu og varð í 69. sæti. Hjalti Böðvarsson byrjaði gönguna vel en þurfti því miður að hætta keppni áður en henni lauk.
Mótinu er þar með lokið fyrir íslensku keppendurna og hafa allir strákarnir keppt í þremur greinum á mótinu: sprettgöngu, 20 km hópstarti og 10 km göngu. Árangurinn hefur í heildina verið góður. Nokkrar mjög góðar göngur sáust á mótinu, þó að ekki fari allt alltaf alveg eins og vonast er eftir.
Þetta hefur verið skemmtileg og lærdómsrík vika í Lillehammer og hópurinn skipaður efnilegum keppendum sem eiga framtíðina fyrir sér í skíðagöngu.
Um helgina keppir Kristrún Guðnadóttir á Norgescup mótaröðinni á Skeikampen. Í gær var keppt í 5 km göngu með hefðbundinni aðferð þar sem Kristrún endaði í 47. sæti og fékk 139 FIS punkta, sem eru hennar bestu punktar í lengri tíma.
Í dag var síðan keppt í sprettgöngu, þar sem Kristrún varð í 34. sæti eftir forkeppnina, aðeins fjórum sætum frá því að komast áfram í útsláttarkeppnina. Hún náði einnig góðum FIS punktum í þeirri keppni.
Á morgun verður svo keppt í 30 km skíðagöngu með frjálsri aðferð á mótinu.
Ævar Freyr Valbjörnsson keppti einnig á sama móti og Kristrún og átti góðar göngur. Í 5 km göngunni fékk hann 165 FIS punkta, sem eru hans bestu punktar í mjög langan tíma.
Á morgun keppir Dagur Benediktsson í Heimsbikarnum í Lahti í Finnlandi, þar sem keppt verður í 10 km skíðagöngu með frjálsri aðferð. Þetta verður annar heimsbikarinn sem Dagur tekur þátt í eftir Ólympíuleikana. Fyrir skömmu keppti hann í 20 km skiptigöngu í Falun í Svíþjóð, þar sem hann náði sínum besta árangri til þessa í skiptigöngu.




